Innlent

Hjálpaði til við uppvask og var hnepptur í gæsluvarðhald

Þorgeir Helgason skrifar
Maðurinn aðstoðaði vin sinn við uppvask þegar lögreglan réðst til atlögu.
Maðurinn aðstoðaði vin sinn við uppvask þegar lögreglan réðst til atlögu. vísir/stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til þess að greiða karlmanni 800 þúsund krónur í bætur vegna rannsóknaraðgerða lögreglu. Maðurinn var handtekinn þegar lögreglan réðst til atlögu vegna gruns um vændisstarfsemi á kokteilklúbbnum Strawberry’s í Reykjavík. Honum var haldið í ellefu daga í gæsluvarðhaldi áður en honum var sleppt.

Á haustmánuðum 2013 réðst lögregla í umfangsmiklar rannsóknaraðgerðir vegna grunsemda um að vændi væri gert úr frá Strawberry’s. Sjö óeinkennisklæddir lögreglumenn fóru á staðinn og var þeim öllum boðin kynlífsþjónusta gegn greiðslu, segir í gögnum málsins.

Síðar um kvöldið réðst lögregla í húsleit á staðnum og voru þeir sem þar voru að störfum handteknir. Stefnandi var meðal þeirra en hann hafði verið á staðnum til að aðstoða vin sinn, sem starfaði sem barþjónn. Hann hefði stundum hjálpað honum við uppvask og þrif þegar mikið hefði verið að gera en aldrei þegið laun. Þessa nótt hefðu verið óvenju margir gestir á staðnum, en síðar kom í ljós að flestir þeirra voru lögreglumenn.

Maðurinn kveðst hafa liðið miklar andlegar kvalir á meðan á einangrunarvist stóð og leiti hugur hans enn til þessa atviks og dvalarinnar í gæsluvarðhaldinu. Aðgerðirnar hafi falið í sér verulegt inngrip í líf hans, enda hafi verið um langvarandi frelsisskerðingu að ræða. Hann gerði kröfu um þrjár milljónir króna í miskabætur.

Uppfært: Það skal tekið fram að grunsemdir lögreglumannana um að kynlífsþjónusta væri í boði á staðnum leiddu ekki til ákæru. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×