Glamour

Kate Middleton klæddist uppáhalds kórónu Díönu

Ritstjórn skrifar
Kate með kórónuna hennar Díönu.
Kate með kórónuna hennar Díönu. Mynd/Getty
Kate Middleton var stödd á viðburði í Buckingham Palace í gærkvöldi ásamt konungsfjölskyldunni. Þar klæddist hún fallegum rauðum síðkjól og var með uppáhalds kórónuna hennar Díönu prinsessu. 

Kórónan ber heitið Cambridge Lovers Knot og hefur gengið í erfðir innan konungsfjölskyldunnar frá árinu 1914. Díana fékk kórónuna í brúðkaupsgjöf frá tengdamóður sinni. Kate tók sig afar vel út með þessa fallegu og sögufrægu kórónu.





Breska konungsfjölskyldan saman komin í gær.Mynd/Getty
Díana prinsessa.





×