Tónlist

Risatónleikar með Rammstein í Kórnum á næsta ári

Benedikt Bóas skrifar
Tónleikarnir fara fram laugardaginn 20. maí næsta vor.
Tónleikarnir fara fram laugardaginn 20. maí næsta vor.
„Margir sem sáu Rammstein árið 2001 segja tónleikana vera með þeim mögnuðustu sem fram hafa farið á Íslandi. Sú sýning var eins og barnaskólaleikrit í samanburði við það sjónarspil sem hljómsveitin stendur fyrir núna,“ segir Frosti Logason en hann hefur verið ráðinn kynningarfulltrúi fyrir tónleika Rammstein í maí á næsta ári.

Frosti Logason ásamt Harmageddon bróður sínum Mána
Þýsku rokkrisarnir í Rammstein munu snúa aftur til Íslands á vormánuðum á næsta ári. Hljómsveitin hélt tvenna ákaflega eftirminnilega tónleika í Laugardalshöll 15. og 16. júní árið 2001.

Miðar á tónleikana ruku út og sátu margir rokkþyrstir eftir miðalausir með þurrar rokkkverkar. Á seinni tónleikunum tilkynnti hljómsveitin í lokin að hún elskaði Ísland, og að hún hygðist koma aftur fljótlega.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Rammstein hefur breyst úr sérviskulegri neðanjarðarhljómsveit í eina stærstu rokkhjómsveit heims.

„Það er því mikið gleðiefni að Rammstein hafi loksins tök á að snúa aftur til Íslands,“ segir Frosti og bætir við að tónleikarnir verði í stærðarskala Justins Timberlake og nafna hans Biebers.

Hér fyrir neðan má sjá Rammstein flytja lagið Du Hast á þýsku þungarokkshátíðinni Wacken árið 2014.

„Tónleikarnir verða í Kórnum í Kópavogi og mun hljómsveitin flytja fimmtán gáma af búnaði til landsins, þrefalt hjóðkerfi, eldvörpur og gríðarlega viðamikinn ljósabúnað. Það verður hvergi slegið af og Rammstein kemur með stærstu útgáfu af sýningunni sinni,“ segir Frosti og bætir við líkt og Bjarni Felixson íþróttafréttamaður: 

„Það er næsta víst að annað eins mun aldrei hafa sést hérlendis.“

Rammstein hefur selt yfir 10 milljónir platna og setið á toppi vinsældalista um víða veröld.vísir/getty
Nánar verður tilkynnt um fyrirkomulag miðasölu á næstu dögum, sem fer fram á tix.is og hefst 1. desember. 

„Það er búist  við miklum fjölda tónleikagesta frá Þýskalandi og því verða eingöngu um 13.000 miðar í boði fyrir íslenska aðdáendur,“ segir Frosti en aðeins verða þessir einu tónleikar sem fara fram laugardaginn 20. maí 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×