Sport

Khabib notar Twitter til að ögra Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Khabib er hrikalega öflugur.
Khabib er hrikalega öflugur. vísir/getty
Khabib Nurmagomedov ætlar sér að fá titilbardaga gegn Íranum Conor McGregor og notar allar leiðir til þess að komast í búrið með Íranum.

Khabib ætti að vera næstur í titilbardaga í léttvigt UFC enda efstur á lista áskorenda og er þess utan ósigraður í 24 bardögum á ferlinum.

Hann fór illa með Michael Johnson sama kvöld og Conor tryggði sér léttvigtartitilinn. Í miðjum bardaga öskraði Rússinn á Dana White, forseta UFC, að hann vildi fá titilbardaga. Svo miklir voru yfirburðir hans gegn Johnson.

Conor sagði sjálfur eftir kvöldið að Khabib ætti ekki skilið að fá titilbardaga þar sem hann væri alltaf að draga sig út úr bardögum. Rússinn keppti ekkert árið 2015 vegna meiðsla.

Khabib er skrímsli og sumir telja að Conor þori ekki í hann. Rússinn er frábær glímumaður og þeir eru til sem segja að hann myndi pakka Conor saman.

Khabib birti á Twitter skilaboð sem hann sendi Íranum í skilaboðum á samfélagsmiðlinum þar sem hann skorar Írann á hólm.



 

„Þú verður að berjast við mig. Þú getur ekki  flúið í hvert skipti sem þú lítur í spegilinn. Þá geturðu ekki borið virðingu fyrir sjálfum þér og börnin þín og fjölskylda munu ekki gera það heldur,“ skrifaði Khabib til meistarans.

„Ég veit ég henta þér illa í búrinu en reyndu að deyja eins og írskur stríðsmaður. Ekki flýja eins og kjúklingur. Þú þarft að vernda heiður þíns fólks.“

Skilaboðin í heild má sjá hér að ofan en ekki kemur fram hvort Conor sé búinn að svara honum.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×