Innlent

Aðdáendur Stefáns Karls hópfjármagna milljónir til stuðnings baráttu hans við veikindin

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hafa safnað á sjöttu milljón með hjálp hópfjármögnunarsíðunnar GoFundMe.
Hafa safnað á sjöttu milljón með hjálp hópfjármögnunarsíðunnar GoFundMe. Vísir
Stefán Karl Stefánsson leikari hefur snert marga í gegnum tíðina með fjölbreyttum leik sínum. Hann glímir nú við krabbamein en fær stuðning úr öllum áttum. Aðdáendur hans standa nú fyrir söfnun á hópfjármögnunarsíðu og hafa safnað rúmlega sex milljónum króna á einum mánuði.

Fjárfrámlögin streyma inn og aðeins líða nokkrar mínútur á milli framlaga, líkt og sjá má á síðu söfnunarinnar, og fær Stefán Karl oftar en ekki góðar kveðjur með.

„Takk fyrir hlutverkin sem þú hefur leikið í þáttum sem hafa snert svo marga,“ skrifar Cheryl Ammeter. „Ég vona að þú náir fullum bata og vitir að allt sem þú hefur gefið heiminum mun koma til baka í formi virðingar, þakklætis og ástar.“

Stefán Karl er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar.Vísir/Stefán
Stefán Karl, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Glanni glæpur í Latabæ, bæði hér heima og erlendis, greindist með krabbameini í brishöfði í september og gengst nú undir meðferð vegna þess.

Markmið söfnunarinnar er að ná 50 þúsund dollurum, um 5,6 milljónum króna og er ekki í langt í land en eins og er stendur söfnunin í tæplega 47 þúsund dollurum, um 5,1 milljón króna.

Sjá einnig:„Maður brestur í grát, verður lítill og ósjálfbjarga“

Stefán Karl á góða en í haust voru haldnir styrktartónleikar þar sem landsþekktir listamenn á borð við Stuðmenn, Nýdönsk, Laddi, Valgeir Guðjónsson komu fram til stuðnings Stefán Karli.

Það er Bandaríkjamaðurinn Mark Valenti, sem starfaði meðal annars við gerð Latabæjar, sem stendur fyrir söfnuninni. Markmiðið er að safna pening til þess að auðvelda líf Stefán Karls og fjölskyldu sinnar en reikna má með að Stefán Karl verði frá vinnu í nokkurn tíma á meðan hann glímir við krabbameinið.

„Það er mikilvægt að Stefán nái að einbeita sér að batanum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af fjárhaginum,“ skrifar Valenti.

Sjálfur hefur Stefán Karl gengist undir aðgerð vegna krabbameinsins sem gekk að óskum. Í einlægi viðtali Stefán Karls við Vísi skömmu eftir að greint var frá því að hann væri alvarlega veikur kom fram að Stefán Karl hefði fullan hug á því að sigrast á veikindunum.

„Meginmáli skiptir að hugurinn sé stilltur þannig; ég ætla að læknast. Ég trúi því að það sé 25 prósent af bataferlinu,“ sagði Stefán Karl.


Tengdar fréttir

Stefán Karl þakkar fyrir stuðninginn

"Samhugurinn er svo máttugt afl að mig hafði aldrei órað fyrir áhrifunum fyrr en nú þegar ég reyni það á eigin skinni,“ segir leikarinn.

Stefán Karl alvarlega veikur

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Stefán Karl Stefánsson, er mjög alvarlega veikur og var lagður inn á sjúkrahús um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×