Sport

UFC 205: Getur Woodley stöðvað karate strákinn?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Tyron Woodley fagnar sigrinum á Robbie Lawler.
Tyron Woodley fagnar sigrinum á Robbie Lawler. Vísir/Getty
UFC 205 fer fram í kvöld í Madison Square Garden í New York. Um er að ræða risabardagakvöld þar sem þrír titilbardagar fara fram og er m.a. barist um veltivigtartitilinn.

Gunnar Nelson keppir auðvitað í veltivigt UFC en þetta er einn sterkasti flokkurinn í UFC. Tyron Woodley (16-3) varð veltivigtarmeistari UFC með sigri á Robbie Lawler í sumar. Hann mun verja beltið sitt í fyrsta sinn í nótt þegar hann mætir Stephen Thompson (13-1).

Sigurinn gegn Lawler kom mörgum á óvart en Woodley rotaði Lawler snemma í fyrstu lotu. Það eru ekki margir sem hafa trú á Woodley gegn Thompson enda er sá síðarnefndi sigurstranglegri hjá veðbönkum.

Woodley hefur þó oft áður komið á óvart en þetta er sjötti bardaginn í röð þar sem andstæðingur hans er talinn sigurstranglegri fyrirfram. Woodley á sjálfur erfitt með að skilja hvers vegna svo fáir hafa trú á sér og er staðráðinn í að sýna hvers hann er megnugur.

Woodley er frábær íþróttamaður og er með sjaldséðan hraða og sprengikraft eins og sást er hann rotaði Lawler. Woodley átti góðan feril í bandarísku háskólaglímunni og þarf að nýta sér glímuna í kvöld.

Stephen Thompson er virkilega skemmtilegur bardagamaður sem hefur farið á kostum að undanförnu. Thompson hefur æft karate frá þriggja ára aldri og var ósigraður í 57 bardögum í sparkboxi áður en hann snéri sér að MMA. Thompson hefur unnið sjö bardaga í röð eftir sitt fyrsta tap á ferlinum og á þennan titilbardaga fyllilega skilið.

Thompson er talsvert vinsælli en Woodley og hefur honum verið fagnað af aðdáendum í vikunni á meðan baulað er á Woodley. Thompson er líka fyrirmyndardrengur og er erfitt að segja eitthvað neikvætt um hann. Hann kennir krökkum karate, kemur vel fyrir og er með skemmtilegan stíl í búrinu sem gaman er að horfa á.

Thompson er með afskaplega góða fótavinnu og er oft á tíðum líkt og hann sé ósnertanlegur. Hann er snöggur og tæknilegur og reynist hann mörgum bardagamönnum erfið ráðgáta.

Það gæti því reynst meistaranum Woodley erfitt fyrir að stoppa karate strákinn Stephen Thompson. Það myndi reynast Woodley vel að þjarma að Thompson upp við búrið þar sem hann hefur minna pláss til að athafna sig. Það er þó hægara sagt en gert enda hafa margir reynt en fáum tekist.

Bardaginn er næstsíðasti bardagi kvöldsins á UFC 205 en þeir Eddie Alvarez og Conor McGregor mætast í aðalbardaga kvöldsins. UFC 205 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en bein útsending hefst kl 3, aðfaranótt sunnudags.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×