Glamour

Brutu glerþakið með hælaskóm og hafnaboltakylfum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Skjáskot
Bandaríska Glamour hélt á dögunum sín árlegu Women of the Year- verðlaun á dögunum í Los Angeles. Það má segja að verðlaunaafhendingin hafi farið fram í skugga forsetakosningana þar í landi þar sem Donald Trump sigraði Hillary Clinton en tímaritið fór ekki leynt með stuðning sinn á Clinton sem hefði orðið fyrsti kvenkynsforseti Bandaríkjanna.

Í aðdraganda kosninganna var mikið talað um hið fræga glerþak sem Hillary hefði brotið hefði hún náð kjöri og brá Glamour því á leik með gestum sínum sem fengu að brjóta táknrænt gler, með hælaskóm eða hafnaboltakylfum, á myndböndum sem hafa farið á flug á samfélagsmiðlum. Skemmtilegt og táknrænt í ljósi úrslita kosninganna. 

Meðal þeirra sem brutu glerið voru Ashley Graham, Anna Wintour, Cara Delevigne og Simone Biles. 






×