Lífið

Konni fór í brasilískt vax og snappaði allt saman: „Er pungurinn ennþá þarna?“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Konni er harður.
Konni er harður.
„Ákvað að athuga hvort að karlmennskan mín höndlaði ekki brasilískt vax... sneið af köku og ég er ennþá smooth as a baby 20 dögum seinna,“ segir maður að nafni Konráð Gunnar Gottliebsson sem heldur út snapchat-reikningnum thekonnigotta.

Hann skellti sér á dögunum í vax og fór alla leið. Konni lét vaxa á sér punginn og heyrðist meðal annars þessi orð; „Er pungurinn ennþá þarna?“ þegar hann gekk í gegnum ferlið.

„Mæli með þessu strákar og stelpur,“ segir Konni í Facebook-færslu á síðunni sinni en hann deilir þar myndband úr vaxmeðferðinni sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×