Lífið

Kolbrún hélt að hún væri fyrsta barn foreldra sinna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ef þú horfðir ekki á Leitin að upprunanum á Stöð 2 í gærkvöldi skaltu hætta að lesa, því hér á eftir fylgja upplýsingar um það sem fram kom í þættinum.

.

.

.

.

„Ég fékk smá sjokk þegar ég fékk þessar fréttir og hugsaði með mér að þetta gæti bara ekki verið,” sagði Kolbrún Sara Larsen í þriðja þætti af Leitinni að upprunanum á Stöð 2 í gærkvöldi en Kolbrún var ættleidd frá Tyrklandi tveggja ára gömul og hefur öll sín 36 ár staðið í þeirri trú að hún hafi verið fyrsta barn mjög ungra foreldra. Upplýsingar frá manni í Tyrklandi, sem samþykkti að hjálpa henni við leitina, kollvörpuðu því litla sem hún taldi sig vita um fortíð sína, en hann færði henni þær fréttir að hún væri yngst fimm systra.

Þegar foreldrar Kolbrúnar, Kristrún Sigtryggsdóttir og Hermann Larsen, sóttu hana á barnaheimilið í Ankara fyrir margt löngu var hún mjög vannærð og veikburða auk þess sem talið er að hún hafi verið nefbrotin. Þau fengu mjög takmarkaðar upplýsingar um fortíð hennar og fjölskyldan hefur því aldrei vitað hvers vegna ástandið á henni var eins slæmt og raun bar vitni. Leitin gengur því ekki bara út á að finna fjölskyldu Kolbrúnar heldur einnig að fá svör við því hvað Kolbrún upplifði á fyrstu tveimur æviárum sínum.

Kolbrún hélt til Istanbul í þætti gærkvöldsins ásamt sjónvarpskonunni Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur til að hitta manninn sem tókst að grafa upp upplýsingar um fjölskyldu hennar og fékk þar einnig þau tíðindi að líffræðilegir foreldrar hennar væru fráskildir og að móðir hennar væri gift þorpshöfðingja í litla fjallaþorpinu þar sem Kolbrún fæddist. Í enda þáttarins hafði þeim tekist að finna heimili systur Kolbrúnar og bönkuðu upp á, en meðfylgjandi er brot úr þættinum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×