Sport

Gunnar mun ekki berjast í Belfast

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar er meiddur og keppir því miður ekki í Belfast.
Gunnar er meiddur og keppir því miður ekki í Belfast. vísir/getty
Ekkert verður af bardaga Gunnars Nelson og Dong Hyun Kim í Belfast þar sem Gunnar okkar er meiddur.

Það er virtasti MMA-blaðamaður heims, Ariel Helwani, sem greinir frá þessu í kvöld. Bardagi þeirra Gunnars og Dong átti að fara fram þann 19. nóvember næstkomandi.

UFC ætlar að tefla fram þeim Gegard Mousasi og Uriah Hall upp sem aðalbardaga kvöldsins í staðinn.

Það er talsvert áfall fyrir Gunnar að missa af þessum bardaga en sigur í honum hefði skotið Gunnari inn á topp tíu lista UFC.

Gunnar keppti síðast í maí er hann kláraði Albert Tumenov og óvíst er að hann keppi aftur á þessu ári úr þessu.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×