Bíó og sjónvarp

Kvikmyndin Guðleysi fékk aðal verðlaunin á RIFF

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frá lokahóf RIFF.
Frá lokahóf RIFF.
Lokahóf RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fór fram í Hvalasafninu á laugardagskvöldið. Þá var hátíðinni formlega slitið og verðlaun veitt í keppnisflokkum hátíðarinnar.

Myndin Guðleysi / Bezbog / Godless (BUL/DEN/FRA) í leikstjórn Ralitza Petrova hreppti aðalverðlaun hátíðarinnar, Gullna lundann. Myndin var hluti af keppnisflokknum Vitranir / New Visions þar sem ellefu myndir kepptu um verðlaunin. Flokkinn skipuðu ellefu myndir sem eiga það sameiginlegt að vera fyrsta eða annað verk leikstjóra og ögra viðteknum gildum í kvikmyndagerð og vísa veg kvikmyndalistarinnar til framtíðar.

Að auki hlaut myndin Risinn / Jätten / The Giant (SWE/DEN) í leikstjórn Johannes Nyholm úr flokknum Vitranir / New Visions sérstaka viðurkenningu dómnefndar. Myndin Eyjarnar og hvalirnir / The Islands and the Whales (FRO/SCO) í leikstjórn Mike Day var sigurmynd flokksins Önnur Framtíð / A Different Tomorrow. Í þeim flokki mátti finna tólf áhrifamiklar heimildamyndir sem eiga það sameiginlegt að fjalla um mannréttinda- og umhverfismál.

Myndin Ungar / Cubs (ICE/USA) í leikstjórn Nönnu Kristínar Magnúsdóttur hlaut verðlaun sem besta íslenska stuttmyndin. Í ár voru í fyrsta sinn veitt verðlaun í flokki erlendra stuttmynda og var það myndin Heima / Home (UK/KOS) í leikstjórn Daniel Mulloy sem hlaut þau. Myndin Herra Gaga / Mr. Gaga (ISR/SWE/GER/NED) í leikstjórn Tomer Heyman hlaut áhorfendaverðlaun RIFF og kemur hún úr heimildamyndaflokki hátíðarinnar.

Kosið var um áhorfendaverðlaunin á vefsíðunni Mbl.is og kepptu þar myndir úr heimildamyndaflokki og Fyrir opnu hafi / Open Seas flokki hátíðarinnar. Loks hlaut myndin Hertoginn / The Duke (USA) í leikstjórn Max Barbakow Gullna eggið, viðurkenningarverðlaun fyrir unga leikstjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×