Glamour

Karlie Kloss verður þáttastjórnandi í nýrri sjónvarpsseríu

Ritstjórn skrifar
Karlie er margt til listanna lagt.
Karlie er margt til listanna lagt. Mynd/Getty
Karlie Kloss hefur sýnt það og sannað að hún er töluvert meira en ein stærsta ofurfyrirsæta heims. Nýjasta verkefnið hennar er afar spennandi en hún er enn af þáttastjórnendum Netflix þátta sem heita Bill Nye Saves The World en þættirnir munu snúast um hvernig nýjustu vísindi hafa áhrif á allt frá pólitík að dægurmenningu.

Kloss er sko margt til lista lagt en hún er þriðja tekjuhæsta fyrirsæta heims og hefur hún stofnað forritunarnámskeið fyrir ungar konur auk þess að stunda nám við New York University í tölvunarfræði og heldur uppi sinni eigin YouTube rás. 

Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband um þáttinn.






×