Viðskipti innlent

Óttast að við verðum of háð túrismanum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir ferðaþjónustuna hafa mikil áhrif á rekstur Ölgerðarinnar.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir ferðaþjónustuna hafa mikil áhrif á rekstur Ölgerðarinnar. Vísir/Anton
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir ferðaþjónustuna hafa mikil áhrif á rekstur Ölgerðarinnar. Um leið óttast hann að við gætum orðið of háð henni. Þetta kom fram á Fjármálaþingi Íslandsbanka í hádeginu í dag sem haldið var á Reykjavík Hilton Nordica.  Á þinginu var farið yfir efnahagshorfur í nýrri Þjóðhagsspá bankans 2016-2018.

„Spáin fyllir mann bjartsýni og líka ótta. Ég óttast gengismálin og mikið flökt og  að við verðum of háð túrismanum. Ferðaþjónustan hefur áhrif á okkur. Sala inn í hótel og veitingahús er að aukast mikið hjá okkur og er 40 prósent vöxtur á þessu ári,” sagði Andri Þór. Þá sagði hann sölu á bjór hafa tekið mikið stökk en þó ekki náð hámarki neyslunnar: „Það var 2009, þá var sala á bjór sú mesta sem hefur verið. Kannski menn að drekka sorgum sínum þá?” sagði Andri Þór við hlátrasköll í salnum. 

Ásamt Andra voru í umræðunum Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair og formaður Samtka atvinnulífsins, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS og Hrund Rudólfsdóttir, forstjóri Veritas. Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka, var fundarstjóri.

5,1% hagvöxtur 2017

Greining Íslandsbanka spáir kröftugum hagvexti í ár eða 4,9 prósent og á næsta ári er spáð 5,1 prósent hagvexti. Er þetta meiri hagvöxtur en mælst hefur hér á landi um árabil. Í kjölfarið er reiknað með hægari hagvexti árið 2018 eða 3,0 prósent. Landsframleiðsla á mann hefur aukist töluvert og mælist nú mikil í alþjóðlegum samanburði. Jafnframt hafa þættir í afkomu heimila þróast með hagfelldum hætti og stutt við vöxt einkaneyslu. Má þá helst nefna kaupmátt launa, störfum hefur fjölgað og atvinnuleysi hjaðnað. Spáir Greining Íslandsbanka því að þessi hagfelda þróun haldi áfram.

Hér má nálgast skýrsluna.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×