Glamour

Girnilegt haust frá Geysi

Ritstjórn skrifar
Það er óhætt að segja að notaleg hauststemming hafi svifið yfir Iðnó í gærkvöldi þegar Geysir frumsýndi nýja haust-og vetrarlínu merkisins. Geysir ákvað að fara að fordæmi annarra stórra tískuhúsa út í heimi og sýna vörur sem hægt er að nálgast í búðunum strax í dag. Sniðugt!

Eins og við var að búast voru girnilegar prjónaflíkur í lykilhlutverki hjá Ernu Einarsdóttur, yfirhönnuði Geysis. Litapallettan voru jarðlitir á borð við gráan og brúnan en inn í það blandaðist myntugrænn og gulur sem setti skemmtilegan svip á sýninguna í heild. 

Plíseruðu pilsin voru á sínum stað og kjóll líka en það eru flíkur sem hægt er að klæða upp og niður að vild. Það sem heillaði ritstjórn Glamour sérstaklega voru buxur úr ullarefni - góðar fyrir veturinn. Einnig ber að minnast á treflana, stórir og girnilegir!

Til að súmmera þetta upp er hér á ferðinni vel heppnuð og klæðileg fatalína frá Geysi þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Hörður Sveinsson tók myndirnar. 

Fallegt prjónasett.
Ullarsjalið er heitasti fylgihlutirinn - í bókstaflegri merkingu.
Þennan kjól má nota bæði hversdags og fín - skemmtileg flík.
Myntugræni liturinn var hressandi.
Þessar buxur heilluðu sérstaklega ristjórn Glamour.
Skemmtilega samsetning í bæði litum og efnum.
Prjónakjóll í fallegu munstri.
Erna umvafin fyrirsætunum í lok sýningar. Myndir/Hörður Sveinsson





×