Enski boltinn

Sendu bílana í sprautun því þeir þekktu þá ekki í sundur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bílafloti leikmanna Leicester.
Bílafloti leikmanna Leicester. Vísir/Getty
Vichai Srivaddhanaprabha, eigandi Leicester City, verðlaunaði sína leikmenn í sumar með því að gefa öllum leikmönnum liðsins ljósbláa BMW i8 bifreiðar.

Leikmenn liðsins voru vitanlega hæstánægðir með það en eðli málsins samkvæmt er auðvelt að ruglast á bílum þegar allur leikmannahópurinn mætir á nákvæmlega eins bílum á æfingar.

Hópur leikmanna ákvað því að senda bílana sína í sprautun til að geta þekkt þá í sundur og leituðu til Marlon Harewood, fyrrum leikmann West Ham og Aston Villa, sem rekur nú bílaverkstæði sem sérhæfir sig í breytingum á glæsibifreiðum.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem verkstæði Harewood hefur birt eftir að það tók að sér að breyta bílum leikmanna Leicester.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×