Innlent

Ágreiningur í erfðamálum fjölskyldu Júlíusar Vífils fer fyrir dóm

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hluti erfingja Ingvars Helgasonar vill fá að vita hvað varð um þá sjóði sem hann sagðist eiga erlendis.
Hluti erfingja Ingvars Helgasonar vill fá að vita hvað varð um þá sjóði sem hann sagðist eiga erlendis. Vísir

Deila erfingja dánarbús Ingvars Helgasonar og Sigríðar Guðmundsdóttur um hvort veita eigi bresku rannsóknarfyrirtæki umboð til þess að leita að týndum sjóðum foreldra sinna erlendis mun fara fyrir héraðsdóm. Hluti erfingjanna skoðar nú hvort þau muni greiða fyrir rannsóknina úr eigin vasa.



Málið vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar systkini Júlíusar Vífils Ingvarssonar, fyrrum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og Guðmundar Ágústs Ingvarssonar, fyrrverandi formanns Handknattleikssambands Íslands, komu fram í Kastljósi og báru þá bræður þungum sökum. Telja þau bræðurna hafa falið lífeyrissjóði foreldra þeirra í aflandsfélögum, ekki aðeins frá þeim systkinum heldur frá móður þeirra systkina.



Bræðurnir hafna alfarið þessum ásökunum.



Sjá einnig: Júlíus Vífill sagður hafa viðurkennt að Panama-peningarnar væru eftirlaunasjóður Ingvars Helgasonar

Vildu systkinin að dánarbúið myndi veita bresku rannsóknarfyrirtæki umboð til þess að leita að sjóðunum. Slík heimild var tekin fyrir á skiptafundi í síðasta mánuði.



Þar greindi skiptastjóri frá þeirri ákvörðun sinni að dánarbúið fylgdi eftir könnun breska rannsóknarfyrirtækisins. Umboðsmaður tveggja erfingja, þeirra Júlíusar Vífils og Guðmundar Ágústs, lýsti sig hins vegar andvígan þeirri ákvörðun.



Skiptastjóri hefur því vísað ágreiningnum til héraðsdóms sem mun skera úr um hvort að rannsóknarfyrirtækinu verði veitt umboð dánarbúsins til þess að hefja rannsókn sína. Óvíst er hvenær málið verður tekið fyrir.

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrum borgarfulltrúi, hefur alfarið hafnað ásökunum.Vísir/Vilhelm

Skoða hvort þau fjármagni rannsóknina sjálf

Ágúst Jóhannsson, barnabarn Ingvars og Sigríðar, segir að erfingjarnir sem vildu fá rannsóknarfyrirtækið til að rannsaka málið séu ekki sáttir við að málið tefjist með því að fara fyrir héraðsdóm. Hann segir rannsóknarfyrirtækið hafa fundið vísbendingar um sjóðina í frumrannsókn sinni á málinu.



„Þeir telja sig vera komna á slóðina og eru með lista yfir banka sem þeir vilja skoða betur með umboði frá skiptastjóra“ segir Ágúst í samtali við Vísi.



„Þeir fara gegn því, bræðurnir. Gegn vilja allra hinna erfingjanna og skiptastjóra.“



Sjá einnig: Júlíus Vífill segir mál sín fjölskylduharmleik

Ágúst segir að erfingjarnir hafi ekki tekið ákvörðun um næsta skref en að líklega muni þeir ákveða að greiða rannsóknarfyrirtækinu sjálf fyrir að halda áfram rannsókn málsins.



„Ég held að það séu allar líkur á því að það verði gert í stað þess að bíða í eitt til tvö ár eftir að niðurstaða fæst í málið fyrir dómstólum,“ segir Ágúst.

Vill ekki tjá sig um fjölskyldumál

Ekki náðist í Júlíus Vífil við vinnslu fréttarinnar. Hann hefur hafnað þeim ásökunum sem fram komu í Kastljósi á sínum tíma og sagt það vera „ótrúlega ófyrirleitið að halda því fram að hann hafi með einhverjum hætti gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu annarra.“ Það væru gróf ósannindi og mannorðsmeiðandi.



Guðmundur Ágúst vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir náði tali af honum og sagði það vera fjölskyldumál sem hann myndi ekki tjá sig um í fjölmiðlum.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×