Innlent

Hafnar ásökunum um afskipti í Norðvesturkjördæmi

Samúel Karl Ólason skrifar
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata. Vísir/Stefán
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, hafnar öllum ásökunum um að hafa reynt að hafa áhrif á prófkjör flokksins í Norðvesturkjördæmi. Hún hefur verið sökuð um að hafa hringt í fólk eftir að búið var að kjósa í fyrri kosningum og reynt að hafa áhrif á uppröðun á lista flokksins.

Samkvæmt Rúv hafa fleiri Píratar stigið fram og sagt svipaða sögu.

„Á mig eru bornar mjög alvarlegar ásakanir um að ég hafi reynt að hafa áhrif á prófkjör Pírata í Norðvesturkjördæmi. Ég vil af því tilefni segja eftirfarandi: Ég hef ekki hringt í fólk í þeim tilgangi að hvetja það til að kjósa á einhvern tiltekinn hátt í prófkjörum Pírata undanfarnar vikur,“ segir Birgitta á Facebooksíðu sinni.

Í samtali við RÚV segir Ágúst Beaumont, ritari Pírata á Vesturlandi, að Birgitta hafi hringt í hann og lýst yfir óánægju með að Gunnar Ingiberg skuli ekki hafa verið ofar á lista. Hann segir Birgittu hafa sett sig í það verkefni að „sjá til þess að hann komist í að minnsta kosti þriðja sæti, en að sjálfsögðu helst í annað.”

Listinn var þó felldur af Pírötum eftir að Þórður Pétursson, oddviti, var sakaður um smölun.

Sjá einnig: „Ætlum sannarlega að draga lærdóm af þessu“

Birgitta segist ekki hafa farið fram á að fólki væri raðað á lista eftir tiltekinni röð né að listum yrði hafnað.

„Enda hafði ég ekki til þess umboð, vald eða vilja. Sjálf átti ég í erfiðleikum með að ákveða hvernig ég ætti að nýta minn kosningarétt í staðfestingarkosningu fyrir Norðvesturkjördæmi, einmitt vegna þess að málefni listans voru flókin og báðar hliðar höfðu eitthvað til síns máls.“

Hún segist vilja funda með hluteigandi við fyrsta tækifæri til að „reyna að skilja hvernig viðkomandi upplifði atburðarás undanfarinna vikna“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×