Lífið

Prívat með sína myndlist

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Freyja Eilíf ásamt ömmu sinni Diddu, sambýliskonu Völundar. Hér eru þær fyrir utan gallerí Ekkisens og fyrrum heimili Völundar.
Freyja Eilíf ásamt ömmu sinni Diddu, sambýliskonu Völundar. Hér eru þær fyrir utan gallerí Ekkisens og fyrrum heimili Völundar. Vísir/Eyþór
„Hann sýndi dálítið á sjöunda áratugnum með vini sínum Degi Sigurðarsyni sem er þekktur listamaður og verkin hans rötuðu dálítið á sýningar í gegnum Dag. Hann var lítið fyrir það að koma sér á framfæri og var prívat maður með sína myndlist,“ segir myndlistarkonan Freyja Eilíf um afa sinn Völund Draumland Björnsson.

Eitt af verkum Völundar. Tréristuþrykk sem ber nafnið Það blæðir úr morgunsárinu.
Í dag verður opnuð yfirlitssýning undir nafninu Draumland á verkum hans í gallerí Ekkisens sem er í kjallarahúsnæði á Bergstaðastræti 25b. Freyja segir það hafa staðið til frá opnun gallerísins að efna til sýningar á verkum afa hennar en sjálfur átti hann á tímabili heima í húsinu og tilefnin eru jafnvel fleiri til þess að ráðast í sýningarhald. „Sýningin er opnuð á afmælisdeginum hans en í ár eru liðin áttatíu ár frá fæðingu hans og stefnan var alltaf sett á að gera þetta núna,“ segir Freyja.

Um er að ræða fyrstu einkasýninguna á verkum Völundar en þessi fyrsta sýning er hluti af sýningarseríu sem gera mun ævistarfi listamannsins skil en hann fæddist árið 1936 og lést árið 2012. Völundur var samferðamaður Dags Sigurðarsonar, Jónasar Svafárs, Elíasar Mar og fleiri listamanna. Í gegnum feril sinn fékkst hann við tréristur, olíumálverk, vatnslitamyndir, ljósmyndun og þýðingar en yngstu verkin á sýningunni eru smágerðar blekteikningar á vindlapappír. Verk hans endurspegla sterka félagslega meðvitund um íslenskt samfélag í hnattrænu samhengi og eru oft mjög pólitísk.

Freyju og afa hennar var vel til vina og þó að hann hafi verið prívat maður með sína myndlist hafði hún í gegnum tíðina séð töluvert af verkum hans. „Við vorum mjög miklir vinir, ég hafði séð margt af þessum verkum og sá mikilvægi þess að þetta yrði sýnt. Þetta er myndlist sem ætti ekki að vera gleymd og grafin heldur þarf að koma fram, sýna og gera skil á.“

Sýningin er opnuð í dag klukkan 17 og eru allir velkomnir. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 21. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×