Körfubolti

Strákarnir unnu Pólverja og tryggðu sér sigur í riðlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska 20 ára liðið.
Íslenska 20 ára liðið. Mynd/FIBAEurope
Íslenska tuttugu ára liðið í körfubolta heldur áfram að gera það gott á EM í Grikklandi en strákarnir unnu 62-60 sigur á Pólverjum í kvöld.

Þetta var þriðji sigur íslenska liðsins í röð en áður hafði liðið unnið Rússa og Eista. Íslensku strákarnir tryggðu sér efsta sætið í sínum riðli og sæti í átta liða úrslitunum með þessum sigri.

Íslenska liðið mætir Georgíu í átta liða úrslitunum á föstudaginn kemur en þá eru strákarnir aðeins tveimur sigurleikjum frá úrslitaleiknum.

Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson var með 16 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar í sigrinum á Póllandi og Haukamaðurinn Kári Jónsson bætti við 13 stigum og 5 stoðsendingum. Miðherjinn að norðan, Tryggvi Hlinason var með 9 stig og 7 fráköst og Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson skoraði 8 stig og tók 10 fráköst.

Finnur Freyr Stefánsson og strákarnir hans töpuðu fyrsta leiknum sínum en hafa síðan haft betur í þremur miklum spennuleikjum. Þar hafa þeir ekki aðeins sýnt að þeir eru góðir í körfubolta heldur einnig að þeir eru með sterkar taugar á úrslitastundu.

Íslenska liðið byrjaði leikinn vel, komst í 8-4, 13-6 og var síðan 13-9 yfir eftir fyrsta leikhlutann.

Pólverjar jöfnuðu metin í öðrum leikhluta en Viðar Ágústsson sá til þess að Ísland var yfir í hálfleik, 30-29, með því að setja niður þriggja stiga körfu.

Íslenska liðið náði mest sex stiga forskoti í þriðja leikhlutanum en Pólverjar átti góðan endakafla í honum og leiddu, 45-44, fyrir lokaleikhlutann.

Íslensku strákarnir skoruðu fjögur fyrstu stig fjórða leikhlutans og voru síðan skrefinu á undan næstu mínúturnar. Lokamínúturnar voru hinsvegar æsispennandi þar sem liði skiptust á því að taka forystuna.

Pólverjar voru 59-58 yfir þegar 40 sekúndur voru eftir en tveggja stiga karfa frá Jóni Axel og tvö vítaskot frá Hjálmari Stefánssyni komu íslenska liðinu í 62-59.

Pólverjar minnkuðu muninn í tvö stig með því að setja niður eitt víti þegar fimm sekúndur voru eftir og reyndu síðan að klikka á hinu. Hjálmar Stefánsson náði hinsvegar varnarfrákastinu og sigurinn var Íslands. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×