Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Kong: Skull Island

Birgir Olgeirsson skrifar
Brie Larson og Tom Hiddleston í Kong: Skull Island
Brie Larson og Tom Hiddleston í Kong: Skull Island
Það rignir hreinlega inn fréttum frá Comic-Con ráðstefnunni í San Diego, Bandaríkjunum. Nú í kvöld frumsýndi kvikmyndaverið Warner Bros. ásamt Legendary Pictures fyrstu stikluna úr KongSkull Island.

Leikstjóri myndarinnar er Jordan Vogt-Roberts en með aðalhlutverk fara Tom Hiddleston, Óskarsverðlaunahafinn Brie LarsonSamuel L. Jackson og John Goodman.

Um er að ræða enn eina King Kong-myndina og er ætlað að vera einhverskonar forsaga þeirrar veru. Verður myndin hluti af áætlun Legendary um að stofna svokallaðan skrímsla-kvikmyndaheimi en KongSkull Island verður frumsýnd á næsta ári, Godzilla 2 árið 2018 og Godzilla VSKong árið 2020. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×