Lífið

Jimmy Kimmel og Matt Damon misstu loksins andlitið í nýjasta „sketsinum“

Birgir Olgeirsson skrifar
Matt Damon og Jimmy Kimmel hjá sambandsráðgjafanum.
Matt Damon og Jimmy Kimmel hjá sambandsráðgjafanum.
Leikarinn Matt Damon er á fleygiferð um heiminn að kynna nýjustu mynd sína Jason Bourne. Það þýðir auðvitað að nýr kafli hefur bæst við deilur hans og spjallþáttastjórnandans Jimmy Kimmel sem spanna áratug.

Sjá einnig: Saga tíu ára illdeilna Jimmy Kimmel og Matt Damon

Í þetta skiptið fóru þeir tveir til sambandsráðgjafa , reyndar í annað sinn en fyrsti fundurinn með sambandsráðgjafa endaði með áflogum þeirra á milli.

Það sem gerðist hins vegar í þetta skiptið er að báðir virtust í fyrsta skiptið missa andlitið, ef svo má segja. Þetta tíu ára grín þeirra á milli, að hatast út í hvorn annan, hefur verið merkilegt fyrir þær sakir að þeir hafa algjörlega sökkt sér í þessi hlutverk sínu sem fjandmenn. En nú virtist einhver stífla bresta því báðir náðu ekki að halda aftur af hlátrinum í blálokin.

Hverju þeir taka síðan upp á næst verður afar forvitnilegt að sjá: 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×