Fótbolti

Lars Lagerbäck: Alvöru prófraun fyrir íslenska knattspyrnu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lars Lagerbäck skilur við íslenska karlalandsliðið í 22. sæti heimslista FIFA. Það hefur aldrei verið ofar frá upphafi og er langhæst meðal Norðurlandaþjóðanna.
Lars Lagerbäck skilur við íslenska karlalandsliðið í 22. sæti heimslista FIFA. Það hefur aldrei verið ofar frá upphafi og er langhæst meðal Norðurlandaþjóðanna. Mynd/Vilhelm Stokstad
Hann heitir fullu nafni Lars Edvin Lagerbäck. Oftast kallaður Lasse af fjölmiðlum í Svíþjóð en við Íslendingar höfum stundum gripið til þess að kalla hann Lalla. Við látum Lars duga í þessu viðtali. Ég hitti Lars á hóteli rétt utan við Arlanda-flugvöllinn norðan við Stokkhólm og nágrannasveitarfélagið Solna, þar sem hann býr. Viðtalið var tekið á laugardagseftirmiðdegi um síðustu helgi, reyndar nokkrum mínútum of seint þar sem mér tókst að boða hann á rangt Radisson hótel. Þau eru nefnilega tvö við flugvöllinn, eins og ég komst að þegar ég hafði reynt að tékka mig inn á það ranga með takmörkuðum árangri.

Lars lét það ekki á sig fá að flakka á milli Radisson-hótela og tók brosandi á móti mér og Bjarna Einarssyni myndatökumanni í anddyrinu á því rétta. Auk þessa viðtals tókum við sjónvarpsviðtal við Lars um gengi Íslands á EM, frá undirbúningnum þar til strákarnir féllu úr leik, sem sýnt verður bæði á Stöð 2 og Stöð 2 Sport á sunnudagskvöld.

„Ég fæddist of snemma,“ sagði Lars þann 9. maí þegar landsliðshópur Íslands fyrir EM var tilkynntur. Um leið tilkynnti Lars endanlega þá ákvörðun sína að hann myndi ekki endurnýja samning sinn við KSÍ og hætta sem þjálfari íslenska landsliðsins, sem og hann gerði þegar Ísland lauk þátttöku í Frakklandi.

Hann fæddist þennan dag, 16. júlí, árið 1948 og fagnar því 68 ára afmæli sínu í dag. Lars er vinalegur maður og kurteis, það hafa að minnsta kosti verið kynni mín af honum frá því að hann tók við starfi landsliðsþjálfara í október 2011. Hann gaf sér alltaf nægan tíma fyrir fjölmiðla í starfi sínu, hvort sem er íslenska eða erlenda, og skipti engu hvort um fámennan blaðamannafund í Laugardalnum væri að ræða eða þaulsetinn fjölmiðlahitting á æfingasvæði strákanna okkar í Annecy í Frakklandi eftir frækinn sigur Íslands á Englandi í 16-liða úrslitum EM.

Lars ræðir við blaðamann á hóteli rétt utan Stokkhólms í vikunni.Mynd/Vilhelm Stokstad
Það var engin undantekning á því þennan laugardaginn, jafnvel þó svo hann væri nýkominn aftur til síns heima eftir að hafa verið frá í um sjö vikur með landsliðinu þar sem hann ræddi við fjölmiðla nánast daglega, allt frá því að liðið kom fyrst saman um miðjan maí á Íslandi þar til það féll úr leik eftir tap gegn Frakklandi, sem heimsfrægt er orðið. Hann gaf sér nægan tíma fyrir viðtalið og kom víða við, þó svo að helsta hugðarefni hans væri framtíð íslenskrar knattspyrnu, staða þjálfunar á Íslandi og hvernig staðið er að málefnum knattspyrnunnar hér á landi.

Ísland aldrei ofar

Eftir 5-2 tapið gegn Frökkum steig Lars formlega til hliðar sem þjálfari íslenska landsliðsins og eftir stendur Heimir Hallgrímsson einn sem aðalþjálfari. Þeir voru samþjálfarar liðsins undanfarin tvö ár en þar á undan var Lars einn aðalþjálfari íslenska landsliðsins með Heimi sér til aðstoðar. Hann skilur nú við landsliðið í 22. sæti heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, sem kom út í fyrradag eftir að það sat neðst í 131. sæti á fyrstu mánuðum hans í starfi. Ísland hefur aldrei verið ofar á listanum.

Þetta eru mikil tímamót, ekki aðeins fyrir íslenska karlalandsliðið og íslenska knattspyrnu í heild sinni, heldur einnig hann sjálfan því Lars hefur lýst því yfir að hann ætli sér ekki að taka að sér annað aðalþjálfarastarf. Hann útilokar ekki aðkomu að knattspyrnunni í framtíðinni og segist reiðubúinn að ræða við hvern sem er um möguleg störf sem hann gæti tekið að sér. Hann vilji þó gefa sér meiri tíma fyrir fjölskyldu sína og vini, enda hafi hann verið frá í að minnsta kosti 150 daga á ári sem landsliðsþjálfari. Því ætlar hann að breyta.

Tímamótin eru einnig mikil fyrir Knattspyrnusamband Íslands. Ekki aðeins vegna þjálfaraskipta karlalandsliðsins heldur vegna sögulegrar velgengni liðsins á EM í Frakklandi. Og þeirra gríðarmiklu tekna sem velgengninni fylgja.

Á blaðamannafundi í Annecy.Vísir/Vilhelm
Peningarnir hverfa eftir 1-2 ár

KSÍ fékk um 1,9 milljarða króna frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, fyrir þátttöku sína og góðan árangur á EM í Frakklandi. Þetta eru stjarnfræðilegar upphæðir fyrir íslenskar íþróttir en til samanburðar má nefna að íslenska ríkið lagði 100 milljónir króna í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir árið 2016 og hafði sú upphæð þá hækkað um 30 milljónir frá árinu á undan. Afrekssjóður ÍSÍ á að nýtast öllum sérsamböndum þess, KSÍ meðtalið.

Stór hluti af upphæðinni sem KSÍ fékk frá UEFA var notaður til að standa straum af kostnaðinum sem hlaust af því að taka þátt í mótinu í Frakklandi. Uppihald var dýrt sem og ferðalög á milli borga og leikja.

Engu að síður tilkynnti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, á ársþingi sambandsins í vetur að 300 milljónir af upphæðinni sem KSÍ fékk frá UEFA eftir að Ísland tryggði sér þátttökuréttinn á EM, 1,1 milljarði króna, myndu renna til aðildarfélaga sambandsins. Lars staldrar við það.

„Ég skil það vel og aðildarfélögin eiga að fá að njóta velgengninnar líka. Hvort sem það eru stóru félögin eða grasrótarstarfsemin,“ segir hann. „En ég hef líka tekið þátt í að ræða hugmyndir við þá sem starfa í fræðslumálum innan KSÍ um að nota eigi upphæðina til að þróa unga leikmenn. Mér myndi hugnast mun betur ef slík leið yrði farin til að styrkja starf félaganna.“

Hingað til hefur því verið haldið fram að einn af lykilþáttum velgengni íslenska landsliðsins sé hversu vel er hlúð að ungum knattspyrnuiðkendum hér á landi og að hver og einn njóti leiðsagnar menntaðs þjálfara. Lars segir þó að það þurfi að gera meira fyrir ungt knattspyrnufólk hér á landi og þá sérstaklega hvað þjálfun varðar.

Eftir Frakklandsleikinn á EM, síðasta leik Íslands undir stjórn Lars Lagerbäck.Vísir/Vilhelm
„Ég hef séð að félög á Íslandi vinna gott starf með yngri flokka sína. En það fer svo að skipta verulegu máli upp á framtíð ungra knattspyrnumanna og -kvenna hvernig staðið er að þjálfun þeirra þegar þau komast á táningsaldur. Þá þarf að vinna eins faglega með þau og mögulegt er og miðað við núverandi ástand væri hægt að nýta fjármagn eins og þetta til að auka gæði þjálfunar fyrir þennan hóp,“ segir Lagerbäck.

Hann segist hafa samanburð eftir að svipuð staða kom upp hjá sænska knattspyrnusambandinu þegar hann hóf þar störf árið 1990. Þá fengu öll félög í efstu tveimur deildunum í Svíþjóð fjármagn sem þau urðu að nota til að ráða þjálfara fyrir 16-19 ára leikmenn.

„Vonandi yrði verkefni sem þetta til þess að fleiri leikmenn verði lengur á Íslandi. Ég hef séð sömu þróun í Svíþjóð, þegar ungir leikmenn halda af landi brott til að sækja sér betri þjálfun,“ segir Lagerbäck.

„Lykillinn að framtíð íslenskrar knattspyrnu er að örva þjálfara ungra leikmanna og leikmennina sjálfa. Það er ekki hægt að nota peninginn í neitt betra en það. Aðstaðan á Íslandi er fyrir hendi og hægt að bæta heilmikið með því að fjárfesta í betri þjálfun. Áhættan við að afhenda félögunum peninga skilyrðislaust er sú að þeir munu einfaldlega hverfa eftir 1 til 2 ár,“ segir hann og bætir við aðspurður að honum myndi til dæmis hugnast illa að nýtt fjármagn yrði notað í leikmannakaup eða launahækkanir.

Lars Lagerbäck fagnar 68 ára afmæli sínu í dag.Mynd/Vilhelm Stokstad
Samstarf þjálfara nauðsynlegt

Ráðningu hans til KSÍ á sínum tíma var tekið fagnandi enda hafði verið uppi krafa um að ráða þjálfara til starfa sem hefði alþjóðlega reynslu, til samanburðar við þá staðreynd að langflestir leikmenn íslenska landsliðsins spiluðu utan landsteinanna og hefðu gert frá táningsaldri. Það þurfti alþjóðlegan þjálfara til að fara með íslenska knattspyrnulandsliðið upp á annað og betra stig.

Lars er ekki með neinar hugmyndir um að íslensk félög ráði erlenda þjálfara til að geta boðið sínu efnilegasta knattspyrnufólki upp á þjálfun sem væri sambærileg við þá sem jafnaldrar þess hjá stórum knattspyrnufélögum í Evrópu fá. Það séu til aðrar leiðir til að ná árangri í þjálfun.

„Það er óraunhæft að ætla að fara sömu leið og stóru löndin og stóru félögin. Við verðum að finna okkar eigin leið og finna hvað við getum gert til að ná árangri á okkar hátt,“ segir hann og nefnir að einna mikilvægast í því tilliti sé aukið samstarf á milli þjálfara, félaga og knattspyrnusambandsins.

„Það er gott að íslenskir þjálfarar eru vel menntaðir en menntunin ein og sér er ekki nóg. Það þarf reynslu líka og hana er hægt að sækja víðs vegar að og miðla með samstarfi. Bestu reynsluna hafa yfirleitt þjálfarar landsliðanna, eldri og yngri, og þeir þurfa að vera í nánu samstarfi við þjálfara hjá félögunum og ræða sín á milli hvernig hægt er að ná sem bestum árangri.“

Lars vill taka skýrt fram að hann beri mikla virðingu fyrir þeirri vinnu sem unnin hafi verið fyrir íþróttina hér á landi.

„Þetta er allt saman undir KSÍ komið og félögunum sjálfum. En þau ættu að nýta þetta tækifæri til að setjast niður og ræða þessi mál almennilega. Nú er komið fram risastórt tækifæri með tilkomu þessa aukafjármagns auk þess sem við höfum lært mikið af síðustu undankeppni sem og af dvölinni nú í Frakklandi. Það verður að huga að langtímalausnum og hvernig KSÍ vill skipuleggja sig til framtíðar svo að íslensk knattspyrna verði enn betri með árunum.“

Ísland vann frækinn sigur á Englandi í Nice. Lars tapaði aldrei landsleik fyrir Englandi.Vísir/Vilhelm
Nefnd með óskýrt hlutverk

Lars segir að tími hans hjá KSÍ hafi verið góður og að hann hafi átt í góðu samstarfi við starfsfólkið þar. Það sé þó ýmislegt sem megi bæta til að gera umhverfið enn fagmannlegra. Lars notar orðið „professional“ mikið í viðtalinu og segir að lykillinn að allri velgengni sé að allir sem koma að starfi KSÍ og landsliðsins séu eins fagmannlegir og hægt er. Það sé grunnkrafa sem hann gerir til leikmanna sinna og starfsmanna landsliðsins.

„Ef ég er gagnrýninn á störf KSÍ þá er það vegna þess að þar má ýmsu breyta. Ég tek þó fram að ég ber virðingu fyrir því hvernig KSÍ starfar en að baki því er ákveðin menning sem á sér langa sögu,“ segir hann.

Síðan hann hóf störf hjá KSÍ leitaði hann annaðhvort til formanns sambandsins, Geirs Þorsteinssonar, eða framkvæmdastjóra (áður Þóris Hákonarsonar og nú Klöru Bjartmarz) þegar taka þurfti ákvörðun um aukin fjárútlát.

Staðreyndin er hins vegar sú að starfandi er sérstök landsliðsnefnd sem hefur það hlutverk að taka allar ákvarðanir sem lúta að landsliðinu. Lars segir að tilvist hennar hafi í fyrstu verið sér algjörlega óljós.

„Mín skoðun er sú að landsliðsþjálfarinn eigi að heyra beint undir framkvæmdastjórann og stjórn [KSÍ]. Og þannig hefur það raunar verið á mínum árum hjá sambandinu. Ég vissi bara ekki um nefndina þegar ég hóf störf og Geir sagði mér að ef það væri eitthvað sem ég þyrfti þá gæti ég leitað til hans,“ lýsir Lagerbäck. „Landsliðsnefndin hafði því í raun enga þýðingu fyrir mér en með tímanum komst ég að því að hún hafði það yfirlýsta hlutverk að hafa umsjón með landsliðinu.“

Lars hitti fjölmiðla nánast daglega á EM í Frakklandi.Vísir/Vilhelm
Þjálfarinn verður að eiga lokaorðið

Fjórir nefndarmenn eru í landsliðsnefnd karla, þeir Rúnar V. Arnarson, Róbert Agnarsson, Jóhannes Ólafsson og Magnús Gylfason. Allir hafa þeir gegnt trúnaðarstörfum í knattspyrnunni um árabil, sérstaklega þrír fyrstnefndu en Magnús á langan þjálfaraferil að baki og kom í nefndina á síðasta ársþingi KSÍ.

Nefndarmeðlimir voru allir með í för í Frakklandi, líkt og öðrum ferðum sem landsliðið fer í. Lars hefur þá sýn að hafa eins fáa starfandi í kringum landsliðið og mögulegt er og að allir hafi skýrt hlutverk og ábyrgð.

„Ég skil vel að stjórnin þurfi að hafa augu og eyru í landsliðsumhverfinu til að fylgjast með því starfi sem þar er unnið. En því meira sem er af fólki, því meira er talað og truflað. Það er sérstaklega mikilvægt þegar farið er í lokamót eins og EM þar sem hópurinn þarf að vera lengi saman og minnstu atriði geta haft mjög truflandi áhrif.“

Hann segir að það hafi komið upp dæmi, þó fyrir Frakklandsförina, þar sem inngrip landsliðsnefndar hafi valdið ruglingi. „Það kom fyrir að þeir stigu inn og sögðu starfsliði fyrir verkum. Það er mín skoðun að það eigi enginn að segja starfsliðinu fyrir verkum nema landsliðsþjálfarinn. Allt verður að fara í gegnum mig eða Heimi. Ef þjálfarinn stendur sig svo ekki í starfi þá er stjórn sambandsins heimilt að fjarlægja hann. En það gengur ekki að mínu mati að hafa marga yfirmenn. Þjálfarinn verður að eiga lokaorðið.“

Lars segir að allt hafi verið rætt í þaula áður en haldið var til Frakklands, ekki síst vegna uppákomu sem átti sér stað í landsliðsferð fyrr í vetur. Hann vildi þó ekkert segja um hvað hafi þá gerst.

„Það sem ég get sagt er að það hafa komið upp atvik sem urðu meðal annars til þess að fundað var með nefndinni. En hvað þar átti sér stað mun ég ekki tjá mig um, það er mál sem verður að útkljá innan knattspyrnuhreyfingarinnar,“ segir Lagerbäck.

Mynd/Vilhelm Stokstad
Nauðsynlegt að ræða málin

Hann hefur ekki áhyggjur af því að mál landsliðsins fari í fyrra horf nú þegar hann lætur af störfum hjá KSÍ. „Að minnsta kosti ekki á meðan Heimir er landsliðsþjálfari. Hann hefur það sterkan persónuleika að það kæmi mér mjög á óvart að það yrði breyting á störfum landsliðsins til hins verra undir hans forystu sem landsliðsþjálfara.“

Hann ítrekar að hann hafi átt gott samstarf við alla hjá KSÍ, líka landsliðsnefndarmeðlimi sem hann beri virðingu fyrir. „Það er margt gott í gangi hjá KSÍ en það er mín skoðun að það þurfi nú að setjast niður og ræða málin almennilega og frá öllum hliðum. Hvað KSÍ og íslensk knattspyrna geti gert til að bæta sig og halda sér í þeim gæðaflokki sem hún er í. Það er auðvelt að halda að það sé allt frábært eins og er, ekki síst með tilliti til þess hversu mikið af peningum flæðir inn, en nú hefst alvöru prófraunin – getur íslensk knattspyrna haldið sér á þessum stalli?“

Lars Lagerbäck gerir upp ævintýri íslenska landsliðsins á EM í Frakklandi í sérstökum viðtalsþætti á Stöð 2 og Stöð 2 Sport annað kvöld. Styttri útgáfa á viðtalinu hefst klukkan 19.10 á Stöð 2 og það verður svo sýnt í fullri lengd klukkan 22.00 á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×