Viðskipti innlent

Tekjur Íslendinga: Árni með tæpar 50 milljónir á mánuði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Skattakóngur Íslands er með ríflega 47 milljónir í tekjur á mánuði.
Skattakóngur Íslands er með ríflega 47 milljónir í tekjur á mánuði. Mynd/Vísir
Árni Harðarson, skattakóngur Íslands, var með 47,7 milljónir í tekjur á mánuði samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag.

Frjáls verslun gefur í dag út sitt árlega tekjublað og er blaðið í sölu í 13 daga. Þar eru birtar tekjur um þrjú þúsund einstaklinga víðs vegar af landinu. Þekkts fólks í þjóðlífinu, menn í atvinnulífi, listum og stjórnmálum.

Árni Harðarson var sem kunnugt er skattakóngur Íslands fyrir árið 2015 en hann greiddi alls 265.319.825 króna í opinber gjöld á liðnu ári. Árni er stjórnarmaður hjá Alvogen og staðgengill forstjóra.

Valur Ragnarsson, forstjóri Medis, er næstur á lista með rúmlega 24 milljónir á mánuði. Á eftir honum kemur Jakob Óskar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Promens með 18 milljónir á mánuði. Á meðal forstjóra er Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi tekjuhæsta konan með 6,1 milljón á mánuði.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er með rúmar sjö milljónir á mánuði og Liv Bergþórudóttir, forstjóri Nova, með um 3,9 milljónir á mánuði í tekjur.

Listi Frjálsrar verslunar er byggður á útsvarsskyldum tekjum á árinu 2015 og þurfa þær því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Í einhverjum tilvikum kann skattstjóri að hafa áætlað tekjur.


Tengdar fréttir

Tuttugu greiða samtals 2,5 milljarða í skatta

Árni Harðarson, skattakóngur ársins, á að greiða 265 milljónir í skatt fyrir síðasta ár. Listi Ríkisskattstjóra yfir tuttugu hæstu gjaldendur breytist töluvert milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×