Viðskipti innlent

Árni Harðarson skattakóngur ársins 2015

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hann greiddi alls 265.319.825 króna í opinber gjöld á liðnu ári.
Hann greiddi alls 265.319.825 króna í opinber gjöld á liðnu ári. Vísir/Vilhelm
Árni Harðarson stjórnarmaður hjá Alvogen og staðgengill forstjóra er skattakóngur ársins 2015. Hann greiddi alls 265.319.825 króna í opinber gjöld á liðnu ári að því er fram kemur í álagningarskrá ríkisskattstjóra.

Árni er viðskiptafélagi Róberts Wessman forstjóra og stofnanda Alvogen.

Næsthæstu gjöldin greiddi Christopher M Perrin stjórnarformaður ALMC eignarumsýslufélags sem áður var Straumur Burðarás. Perrin greiddi alls 200.033.697 krónur í opinber gjöld.

Í þriðja sæti yfir hæstu greiðendurna er Jakob Már Ásmundsson einnig hjá ALMC. Jakob greiddi alls 193.218.736 í opinber gjöld.

Óttar Pálsson lögmaður
Næstur á eftir Jakobi kemur Þórir Garðarson. Hann átti, og á ennþá reyndar hlut í ferðaþjónustufyrirtækin Iceland Excursions, en árið 2015 seldi hann hlut í fyrirtækinu. Það skýrir veru hans á listanum yfir skattakónga nú en Þórir greiddi alls 163.175.914 krónur í opinber gjöld árið 2015.

Sigurdór Sigurðsson kemur næstur og greiddi hann 160.403.826 krónur í opinber en hann, líkt og Þórir, seldi einnig hlut í Iceland Excursions í fyrra.

Í sjötta sæti á listanum yfir skattakónga er Óttar Pálsson lögmaður hjá Logos og stjórnarmaður í ALMC. Hann greiddi 142.730.845 krónur í opinber gjöld á liðnu ári.

Inga Lind Karlsdóttirvísir/anton
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar var í þriðja sæti yfir hæstu gjaldendurna í fyrra en er nú í 15. sæti yfir þá sem greiða hæstu opinberu gjöldin. Hann greiðir á árinu 2015 alls 84.516.529 krónur en árið 2014 greiddi hann 277.499.661 krónur.

Aðeins fjórar konur komast á listann yfir þá tuttugu einstaklinga sem greiða mest í opinber gjöld, þær Þórlaug Guðmundsdóttir, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fyrrverandi forstjóri Actavis, Þuríður Ottesen og Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona.

Seinasta sæti listans skipar svo Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins en listann í heild má sjá hér að neðan.

1.    Árni Harðarson – Reykjavík - 265.319.825 kr.

2.    Christopher M Perrin -Reykjavík - 200.033.697 kr.

3.    Jakob Már Ásmundsson – Hafnarfirði - 193.218.736 kr.

4.    Þórir Garðarsson – Mosfellsbæ - 163.175.914 kr.

5.    Sigurdór Sigurðsson – Reykjavík - 160.403.826 kr.

6.    Óttar Pálsson – Garðabæ - 142.730.845 kr.

7.    Valur Ragnarsson – Reykjavík - 133.059.910 kr.

8.    Sigurður Reynir Harðarson – Reykjavík - 131.512.950 kr.

9.    Kristján V Vilhelmsson – Akureyri - 129.060.207 kr.

10.    Andrew Sylvain Bernhardt - Reykjavík - 112.810.485 kr.

11.    Jakob Óskar Sigurðsson – Garðabæ - 101.488.387 kr.

12.    Þórlaug Guðmundsdóttir - Grindavíkurbæ - 100.992.418 kr.

13.    Þorvaldur Ingvarsson - Reykjavík - 93.116.177 kr.

14.    Egill Jónsson – Hafnarfirði - 86.244.009 kr.

15.    Kári Stefánsson - Reykjavík - 84.516.529 kr.

16.    Guðbjörg Edda Eggertsdóttir - Hafnarfirði - 83.537.457 kr.

17.    Þuríður Ottesen – Reykjavík - 81.246.007 kr.

18.    Benedikt Sveinsson - Garðabæ - 80.440.300 kr.

19.    Ingibjörg Lind Karlsdóttir – Garðabæ - 80.290.404 kr.

20.    Grímur Karl Sæmundsen - Reykjavík - 80.089.692 kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×