Fótbolti

Sjáðu blaðamannafund Heimis og Lars í heild sinni | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eftir frídag frá fjölmiðlum í gær hófst dagskráin aftur í dag hjá íslenska landsliðinu í fótbolta. Hún byrjaði með blaðamannafundi á Novotel í Annecy þar sem landsliðsþjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson sátu fyrir svörum.

Ísland er búið að koma heimsbyggðinni á óvart með því að komast í átta liða úrslit Evrópumótins en það vann England, 2-1, í Nice á mánudagskvöldið. Næst mætir Ísland gestgjöfum Frakklands á Stade de France og má því búast við fjölmörgum blaðamönnum frá Frakklandi í dag.

Fjöldinn allur af fréttamönnum er mættur til Annecy til að fylgja íslenska liðinu eftir í aðdraganda leiksins gegn Frakklandi en í dag bættust við fjölmiðlamenn frá Spáni og Danmörku.

Uppfært klukkan 11:07

Upptöku af fundinum má sjá í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×