Glamour

Bella Hadid er nýtt andlit Dior

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Fyrirsætan vinsæla Bella Hadid er nýtt andlit förðunarlínu Dior en þetta tilkynnti hún á Instagramsíðu sinni í gær. 

Bella hefur á undanförnum misserum skotist upp á stjörnuhimininn og er núna það sem tískuspekingar kalla „it girl“ - með gífurlegum vinsældum á samfélagsmiðlum, systur sem er einnig vinsæl fyrirsæta (Gigi Hadid) og kærasta sem er vinsæll tónlistarmaður (Weekend). 

Bella var stödd í London í gær og fagnaði samstarfinu við Dior með því að ganga pallinn í Cruise sýningu franska tískuhússins. 

Það verður gaman að fylgjast með þessi samstarfi.






×