Innlent

Lögreglukonur ósáttar við ójöfnuð á EM

Snærós Sindradóttir skrifar
Helsta hlutverk lögregluþjónanna er að aðstoða íslenska stuðningsmenn landsliðsins á meðan á keppninni í Frakklandi stendur.
Helsta hlutverk lögregluþjónanna er að aðstoða íslenska stuðningsmenn landsliðsins á meðan á keppninni í Frakklandi stendur. vísir/vilhelm
Kurr er meðal lögreglukvenna vegna þeirrar ákvörðunar að senda bara karla í þeim hópi átta lögregluþjóna sem fara fyrir hönd Íslands á EM. Lögregluþjónarnir koma allir frá Ríkislögreglustjóra en það embætti er verst statt varðandi kynjahlutföll lögregluþjóna á landinu, að frátöldu embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra þar sem hlutfallið er eins, eða konur 5 prósent og karlar 95 prósent.

Fjórar konur starfa sem lögreglumenn hjá Ríkislögreglustjóra samkvæmt tölum lögreglunnar frá 1. febrúar.

Heimildir Fréttablaðsins herma að óánægja ríki hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, jafnt á meðal kvenna og karla, vegna þess að aðeins var leitað til lögreglumanna hjá Ríkislögreglustjóra.

Klara Bjartmarz
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að félagið hafi ekki haft milligöngu á milli franskra og íslenskra yfirvalda. „Ég á svolítið erfitt með að tjá mig um þetta en auðvitað finnst mér persónulega að þarna eigi að vera kona. Við getum alveg tekið sem dæmi að Rauði krossinn sendir tvo sjálfboðaliða. Þar var ákveðið strax að hafa kynjahlutföllin jöfn.“

Í svari frá Thelmu Þórðardóttur hjá Ríkislögreglustjóra segir að „þar sem lögreglukonur embættisins gáfu ekki kost á sér í það er verkefnið mannað með lögreglumönnum frá alþjóðadeild og sérsveit embættisins“.

Sigrún Sigurðardóttir
Sigrún Sigurðardóttir, fyrrverandi lögreglukona, hefur fylgst með óánægju lögreglukvenna grassera síðustu daga. Sjálf fór hún í stórum hópi lögregluþjóna á Ólympíuleikana í Atlanta í Bandaríkjunum árið 1996. 

„Það var ótrúlega góð reynsla. Eins og komið hefur fram er ekki óskað eftir sérsveitarmönnum eða vopnuðu fólki. Ef það á að aðstoða Íslendinga myndi ég telja að það væri alltaf gott að hafa karla og konur,“ segir Sigrún.

„Mér finnst svo sérstakt að það eru bara karlar. Ég skil ekki hvers vegna ekki er leitað út fyrir þennan ákveðna hóp. Það er sagt að einhverjum konum hafi verið boðið sem ekki gátu tekið þetta að sér. Af hverju er þá ekki leitað út fyrir það? Það hallar á konur í lögreglunni, sem er verulegt vandamál. Þetta er ekki til að hvetja konur.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní


Tengdar fréttir

Klara: Vona að fólk fjölmenni og segi takk

Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ, segir að Knattspyrnusambandið hafi í mörg horn að líta fyrir EM í knattspyrnu í sumar, en lokaundirbúningur Íslands er nú í fullum gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×