Lífið

Lærðu lögin um strákana okkar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mörg þúsund Íslendingar verða í Frakklandi í júní.
Mörg þúsund Íslendingar verða í Frakklandi í júní. vísir/vilhelm
Síðasti leikur íslenska landsliðsins fyrir Evrópumótið í Frakklandi fór fram á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Þá vann liðið öruggan 4-0 sigur á landsliði Liechtenstein.

Mætingin á Laugardalsvöllinn var nokkuð góð, þó að ekki hafi verið uppselt. Mörg þúsund Íslendingar eru nú að undirbúa brottför til Frakklands til að fylgjast með liðinu þegar það mætir Portúgal, Ungverjum og Austurríki.

Á vellinum í gærkvöldi stýrði Tólfan, stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins mörgum hópsöngvum en hér að neðan er hægt að kynna sér þá söngva, til að undirbúa sig fyrir leikina í Frakklandi. 

TÓLFAN (Tartan Army)

Tólfan kemur,

Tólfan kemur,

Tólfan kemur völlinn á,

ef þú heyrir læti Laugardalnum í,

Tólfan Kemur Völlinn á!

VIÐ ELSKUM... (We Love You)

Viiiiiið ELSKUM! ELSKUM! ELSKUM!

Elskum ykkur ALLA! ALLA! ALLA!

og við ERUM ERUM ERUM

í alvöru á EM EM EM

Óóóóóhhhh-Óóóóóhhhhh....

DREKKUM DRYKK (Cantona)

Óóóóóóóhhhh...

Drekkum Drekkum drykk

Fyrir Ísland mig og þig

Við erum Íslendingar og Tólfumenn

Munum aldrei, hætta að peppa

okkar maaaagnaða lið !

ÁFRAM ÍSLAND

(Starman - David Bowie)

Áfram Íslaaand

Tólfan hún er hér

Í Frakklandi með þér

og við peppum eins og her

Áfram Íslaaaand

Tólfan hún er hér

Í Frakklandi með þér

og við peppum eins og her

EMIL HALLFREÐS

(Draumur um Nínu)

Átt stað í okkar hjarta

Kannt svo líka að sparka

Þú vinnur alla bolta

Og þú skapar líka slatta af mörkum

sendingar á hæstu klössum

Þú ert okkar stolt Emil Hallfreðs

EF ÞÚ ERT ÍSLENDINGUR...

Ef þú ert Íslendingur gemmér klapp

Ef þú ert Íslendingur gemmér klapp

Ef þú ert Íslendingur

og þú veist hvað þú syngur

Ef þú ert Íslendingur gemmér klapp!

LARS LAGERBACK (Jameson)

Við styðjum Lagerback

Við styðjum Lagerback

Allan daginn út og inn,

Hann stillir upp réttu liði

hér inná þessu sviði

Já hann er sko rétti maðurinn !!

HEIMIR HALLGRÍMS

Einn Heimir Hallgríms

Það er aðeins einn Heimir Hallgríms

Einn Heimir Haaaaallgríms

Það er aðeins einn Heimir Hallgríms

ARON EINAR GUNNARSSON

(Krummi svaf í klettagjá)

Aron Einar Gunnarsson,

Stýrir miðju eins og Don.

Hann er okkar kapteinn,

hann er okkar kapteinn!

KAPTEINN! KAPTEINN!

KAPTEINN! KAPTEINN!

HANNES

Það var Hannes sem bjargaði mér

Það var Hannes sem bjargaði mér

Það var Hannes sem bjargaði mér og þér

Það var Hannes sem bjargaði mér

Syngjum jæ jæ jibbí jibbí jæ...

JÓN DAÐI (Popplag í g-dúr)

Við syngjum Jón Daði Böðvars

Við syngjum Jón Daði Bjééé!

Við syngjum Jón Daði Böðvars

Það er engin leið að stopp’ann

Það er engin leið að stopp’ann

Það er engin leið að stoppa Selfyssinginn

Jón Daða Böðvars

Jón Daða Bjéééé

GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON

Gylfi Þór Sigurðsson er snillingur,

Gylfi Þór Sigurðsson er snillingur,

Hann sólar einn

Hann sólar tvo

Hann skýtur á markið og skorar svo,

Gylfi þór já hann er snillingur

X2 og svo nananananana...

JÓHANN BERG (Oh When The Saints)

Óóh Jóhann Berg Óóh Jóhann Berg

Óh Jóhann Berg er maðurinn

Við viljum sjá aðra þrennu

Alla upp í vinkilinn !

KÁRI ÁRNA

Ég fíla Kára Árna

Ég fíla Kára Árna

Ég fíla Kára Árna

Ég fíla- KÁRA !

RAGGI SIG

Ó Raggi Sigurðs við öll elskum þig!

Ó Raggi Sigurðs við ávallt styðjum þig!

Ó Raggi Sigurðs komdu boltanum buuurt!

KOLBEINN SIGÞÓRSSON

(Ríðum sem fjandinn - Helgi Björnss.)

Hann skorar, skorar,

skorar fullt af mörkum

og hann er þráðbeinn

Hann heitir Kolbeinn

og er Sigþórsson

ARI FREYR



(Mamma beyglar alltaf munninn)

Ari er ætíð okkur traustur

Fljótur sterkur og svo hraustur

Hann stöðvar hvern mann

Við getum treyst á hann

JÓN DAÐI (Toni Basil - Hey Mickey)

Jón Daði á sprettinum

Sólandi og skorandi

Jón Daði, (klapp klapp ) Jón Daði

ALFREÐ FINNBOGA

(Robin Van Persie)

Óóóóóóh Alfreð Finnboga

Óóóóóóh Alfreð Finnboga

EIÐUR SMÁRI

Eiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiður Smááári!

Oooh-Aaah !

Við viljum sjaááááááááááá

hvað þú ert fallegur

KOLBEINN SIGÞÓRSSON

(Fjöllin hafa vakað)

Kolbeinn hefur skorað í þúsund ár

Ef þú rýnir inn í markið

sérðu markmannstár

Hann skorar nær og fjær

og markametið slær

Kolbeinn Sigþórsson hann skorar

endalaaaaaauuuuuuust!

ÍSLENSKI ÞJÓÐSÖNGURINN

Ljóð: Matthías Jochumsson

Lag: Sveinbjörn Sveinbjörnsson

Ó, guð vors lands!

Ó, lands vors guð!

Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!

Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans

þínir herskarar, tímanna safn.

Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár

og þúsund ár dagur, ei meir:

eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,

sem tilbiður guð sinn og deyr.

:/: Íslands þúsund ár, :/:

eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,

sem tilbiður guð sinn og deyr.

Hér má hlaða söngskránni niður á pdf-formi: söngskrá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×