Körfubolti

Ægir og félagar undir í úrslitaeinvíginu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ægir í leik með KR í vetur.
Ægir í leik með KR í vetur. vísir/getty
Ægir Þór Steinarsson og félagar í Peñas Huesca eru lentir 1-0 undir gegn Club Melilla Baloncesto um laust sæti í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Peñas byrjaði vel og var þremur stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 27-24. Baloncesto tók við sér í öðrum leikhluta og leiddi með tveimur stigum í hálfleik, 43-41.

Munurinn var enn tvö stig þegar þriðja leikhluta var lokið, 63-61, en Baloncesto unnu að lokum fimm stiga sigur, 86-81.

Þeir eru því komnir í 1-0 í úrslitaeinvíginu um sæti í úrvalsdeildinni, en fyrsta liðið til að vinna þrjá leiki tryggir sér sæti í efstu deild Spánar.

Ægir skoraði fjögur stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×