Innlent

Átta íslenskir lögreglumenn standa vaktina á EM í Frakklandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Íslendingar ætla að fjölmenna til Frakklands en KSÍ gerir ráð fyrir 15-20 þúsund stuðningsmönnum frá Íslandi.
Íslendingar ætla að fjölmenna til Frakklands en KSÍ gerir ráð fyrir 15-20 þúsund stuðningsmönnum frá Íslandi. Vísir/Vilhelm
Íslensk stjórnvöld munu senda átta lögreglumenn á Evrópumótið í knattspyrnu í Frakklandi í næsta mánuði að ósk innanríkisráðherra Frakklands. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita allt að tuttugu milljónum króna af fjáraukalögum þessa árs í verkefnið. 

Lögreglumennirnir verða frönskum lögregluyfirvöldum innan handar, en áætlað er að allt að tuttugu þúsund Íslendingar verði á mótinu í sumar. Frönsk yfirvöld hafa óskað eftir aðstoð frá öllum þeim þjóðum sem taka þátt í mótinu. 

Reiknað er með því að á milli 15 til 20 þúsund Íslendingar muni verða í Frakklandi í tengslum við mótið. 

Flakka á milli borganna þar sem Ísland spilar

Innanríkisráðuneytið hefur átt samráð við embætti ríkislögreglustjóra um viðbrögð við erindinu en fulltrúi embættisins tekur þátt í  NFIP samstarfi (National Football Information Point) Evrópuríkja sem Ísland á aðild að á grundvelli Evrópusamnings um „ofbeldi og óhlýðilega hegðun áhorfenda á íþróttamótum, einkum á knattspyrnuleikjum.“ 

Frönsk stjórnvöld hafa óskað eftir lögreglumennirnir starfi í miðstöð alþjóðlegrar lögreglusamvinnu og verði í færanlegri sveit, sem ætlað er að fara á milli borga í Frakklandi,  þar sem íslenska landsliðið spilar hverju sinni og vera staðarlögreglu til aðstoðar. Ísland spilar í St. Etienne, Marseille og París 14. , 18. og 22. júní.

Umbeðin aðsto
ð við frönsk yfirvöld mun m.a. felast í því að  vera í sambandi við íslensku stuðningsmennina og veita þeim aðstoð, vera þeim innan handar vegna mála sem hugsanlega geta komið upp, s.s. ef rýma þarf leikvang eða gefa fyrirmæli um einhverjar breytingar á áætlun. Íslensku lögreglumennirnir munu fá allar upplýsingar frá fyrstu hendi, geta miðlað þeim áfram til stuðningsmanna eftir atvikum og veitt alla mögulega aðstoð.

Kostnaður fer eftir árangri Íslands

Kostnaðaráætlunin ræðst af framgangi landsliðsins á mótinu en kostnaður er talinn geta orðið allt að 20 milljónir króna ef landsliðið nær langt í keppninni. InnanríkisráðherEmbætti ríkislögreglustjóra verði falið að annast framkvæmd málsins á grundvelli samþykktrar kostnaðaráætlunar í samráði við innanríkisráðuneytið.

Vegna mótsins fór fram öryggisráðstefna átakshóps innanríkisráðuneytis Austurríkis þann 12. maí í Vínarborg. Fulltrúar innanríkisráðuneyta, knattspyrnusambanda og lögregluembætta Ungverjalands, Íslands, Portúgal og Austurríkis undirbúa öryggisráðstafanir fyrir riðlakeppnina og sat Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir aðstoðarmaður innanríkisráðherra fundinn fyrir hönd ráðherra, ásamt Vilhjálmi Gíslasyni, fulltrúa ríkislögreglustjóra. Fyrrnefndar þjóðir eru með Íslandi í F-riðli mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×