Matur

Svartbaunaborgari á grillið

Sigvaldi Ástríðarson, útvarpsmaður og formaður Samtaka grænmetisæta á Íslandi.
Sigvaldi Ástríðarson, útvarpsmaður og formaður Samtaka grænmetisæta á Íslandi. MYND/ERNIR

Sumarið er tími útigrillsins fyrir flesta landsmenn og þar eru grænmetisætur alls ekki undanskildar. Í dag fæst gott úrval af borgurum, pylsum og steikum fyrir grænmetisætur og þeir sem vilja elda frá grunni geta líka valið úr miklu fjölbreyttara hráefni en áður. Raunar þarf lítið annað en gott hugmyndaflug (og kannski smá hjálp frá Google) til að töfra fram gómsæta grillrétti á borð grænmetisætunnar í sumar, að sögn Sigvalda Ástríðarsonar, útvarpsmanns og formanns Samtaka grænmetisæta á Íslandi.

„Fyrir utan tilbúna borgara, pylsur og grænmetissteikur er það líka þetta augljósa á borð við bökunarkartöflur, maís­stöngla og ýmislegt grænmeti. Ég stefni t.d. á að gera tilraunir með tófú á grillinu í sumar sem viðbót við eitthvað hefðbundið á borð við eggaldin og fylltar paprikur.“

Lúxus úr einföldu hráefni

Hann segir möguleikana mikla þegar kemur að grænmetisréttum á grillið. „Síðan er svo einfalt að leita á netinu að góðum hugmyndum. Hversu ómerkilegt sem það hljómar þá er hægt að gera ótrúlega lúxusmáltíð úr einföldu hráefni á borð við gulrót eða maís­stöngul, bara ef maður kryddar og hugsar aðeins út fyrir kassann. Ég held t.d. að grilluð gulrót, sem legið hefur í ólívuolíu, papriku, fennel, kóríander, hvítlauk og timían komi mörgum á óvart. Ekki skemmir fyrir að skella því á ferskt salat með kjúklingabaunum og dökkgrænu káli. Svo held ég að vel þurrkað tófú gæti komið mörgum á óvart en galdurinn þar er undirbúningurinn.“

Auk þess að stýra útvarpsþættinum Dordingull á Rás 2 heldur Sigvaldi úti Snapchat-aðganginum Dordingull þar sem hann eldar grænmetisrétti og birtir ýmsan fróðleik fyrir grænmetisætur og aðra áhugasama.

Hér gefur Sigvaldi uppskrift af svartbaunaborgara með kasjúostasósu sem er bæði einfaldur og bragðgóður. Hann hentar sérstaklega vel á grillið en auðvelt er að breyta uppskriftinni eftir því hvaða hráefni er til í eldhúsinu og eftir smekk hvers og eins.

Svartbaunaborgari með kasjúostasósu, borinn fram með fersku grænmeti og maísstöngli.

Vegan svartbaunaborgarar fyrir grillið



1 bolli soðin brún grjón

1 bolli hakkaðar valhnetur

1/2 tsk. olía

1/2 smátt skorinn laukur

2 bátar hvítlaukur

1 tsk. af sjávarsalti, pipar, kúmendufti, paprikukryddi og chilli

1 tsk. hrásykur eða kókossykur

1 dós hakkaðar svartar baunir

1/2 bolli Panko-brauðraspur (einni hægt að nota glútenlaust rasp)

3 til 4 msk. vegan BBQ-sósa

Siriachi-sósa (til að gera þetta sterkt – má sleppa)



Sjóðið grjónin og ristið fínt hakkaðar hneturnar í 5 til 7 mín. Passið að hræra vel í hnetunum á meðan þær eru ristaðar, leggið svo til hliðar og kælið. Steikið laukinn á pönnu með olíunni þar til hann lin­ast og setjið til hliðar. Blandið hnetunum, kryddinu og sykrinum saman í matvinnsluvél.

Maukið í stórri skál svörtu baunirnar (án vökva) og skiljið örfáar baunir eftir heilar. Blandið grjónunum við baunamaukið og hnetu­kryddblöndunni, lauknum, Panko-brauðraspinum og BBQ-sósunni saman. Ef blandan er of blaut, bætið við meiri raspi og kryddið til viðbótar að vild.

Skiptið uppskriftinni í 6 bollur og mótið þær í borgara. Grillið borgara í 3-til 4 ­mínútur á hvorri hlið, létthitið borgara brauðin á grillinu, setjið saman með sósum, fersku káli/spínati og grænmeti.

Kasjúostasósa

1 dl kasjúhnetur

1/2 dl vatn

2 msk. næringarger

1 tsk. laukduft

1 tsk. hvítlauksduft

1-2 msk. lime-safi

Salt

Látið kasjúhneturnar liggja í bleyti í 2-3 tíma ef þið hafið tíma. Helltu vatninu af og maukaðu allt saman í blandara eða matvinnsluvél. Bætið við vatni ef þörf er á en sósan á vera þykk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×