Innlent

Eftirlaun Davíðs koma til frádráttar forsetalaunum

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Eftirlaun Davíðs Oddssonar kæmu til frádráttar launum hans sem forseta Íslands næði hann kjöri. Þrátt fyrir þetta kæmi Davíð til með að afsala sér um 1.400 þúsund krónum á mánuði í laun.  Eftirlaunalögin svo kölluðu voru samþykkt á Alþingi hinn 15. desember 2003. Lögin kváðu á um hækkun eftirlauna forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara. 

Í lögunum var sérstakt ákvæði um eftirlaun forsætisráðherra en í 6. gr. laganna kom fram að fyrrverandi forsætisráðherra, sem hefði gegnt embætti í a.m.k. eitt ár, ætti rétt til eftirlauna samkvæmt lögunum með sama hlutfalli og forseti Íslands. Í greinargerð með lögunum var þessi sérregla rökstudd með þeim hætti að forsætisráðherra á hverjum tíma væri hinn pólitíski leiðtogi þjóðarinnar og færi með valdamesta embætti landsins. Því þætti eðlilegt að um hann gilti sérregla sem væri nokkru hagstæðari en fyrir aðra ráðherra.

Mun ekki þiggja forsetalaun

Davíð Oddsson var forsætisráðherra á þeim tíma þegar lögin voru samþykkt. Davíð hefur sem kunnugt er lýst yfir framboði til forseta Íslands og sagði í þættinum Eyjunni á Stöð 2 á sunnudag að hann myndi ekki þiggja forsetalaun næði hann kjöri.

Eftirlaunalögin voru afnumin árið 2009 í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Jafnframt var lögfest ákvæði  varðandi áhrif starfa samhliða eftirlaunatöku. Þar kemur fram að gegni sá sem fær greidd laun samkvæmt eftirlaunalögunum starfi á vegum ríkisins, stofnana þess eða félaga í meirihlutaeigu þess, skuli launagreiðslur fyrir það starf að fullu koma til frádráttar eftirlaunum.

Samkvæmt þessu liggur fyrir að Davíð mun ekki eiga rétt á fullum launum forseta Íslands nái hann kjöri hinn 25. núní nk. Laun forseta eru nú rúmar 2,3 milljónir á mánuði en samkvæmt þeim upplýsingum sem Davíð hefur gefið fjölmiðlum þiggur hann í dag um 900.000 krónur á mánuði í eftirlaun. Eftirlaun Davíðs kæmu til frádráttar forsetalaunum hans og ætti hann þá rétt á rúmum 1.400 þúsund krónum á mánuði, nái hann kjöri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×