Bíó og sjónvarp

Ísland í bakgrunni sjöttu seríu Game of Thrones

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Myndir frá Djúpalónssandi voru notaðar til að skapa umhverfi Hardhome í fimmtu seríu Game of Thrones
Myndir frá Djúpalónssandi voru notaðar til að skapa umhverfi Hardhome í fimmtu seríu Game of Thrones Mynd/HBO
Enn á ný mun Íslandi bregða fyrir í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Game of Thrones en þetta kom fram í máli framleiðenda þáttanna á sérstakri heimsforsýningu sjöttu seríu Game of Thrones sem haldin var í gær. Tökulið frá þáttunum var hér á landi til þess að taka upp landslagsmyndir fyrir hina nýju seríu.

Ísland hefur áður spilað stóra rullu í þáttunum þó að hún hafi heldur minnkað eftir því sem liðið hefur á framleiðslu þáttanna. Við tökur á annarri seríu Game of Thrones lagði leikaralið og framleiðsluteymi undir sig Mývatnssveit og fyrir fjórðu þáttaröðina kom þrjú hundruð manna hópur tökuliðs og leikara til landsins til þess að taka upp á Þingvöllum og víðar.

Sjá einnig: Hver er söguhetja Game of Thrones?

Í þetta sinn kom hinsvegar fámennt tökulið til þess að taka upp landslagsmyndir sem nýttar verða í sjöttu seríu þáttanna. Framleiðslufyrirtækið Pegasus aðstoðaði tökuliðið líkt og áður.

„Það stóð til að þrír leikarar myndu koma til landsins en það breyttist,“ segir Einar Sveinn Þórðarsson hjá Pegasus. „Það kom lítill hópur til landsins fyrir sjöttu seríuna til að mynda landslag og aðrar viðbætur,“ segir Einar sem vildi ekki gefa mikið upp en talsvert er lagt upp úr því að sem minnst spyrjist út um hina væntanlegu þáttaröð sem sýnd verður þann 24. apríl.

Sjá einnig: Meðlimir Of Monsters and Men eitursvalir á heimsfrumsýningu Game of Thrones

En þrátt fyrir að umfang tökuliðs Game of Thrones fari minnkandi hér á landi er ekki þar með sagt að hlutverk Íslands fari sömi leið. Í fimmtu seríu bregður Íslandi fyrir í einu af umfangsmesta atriði þáttanna til þessa, orrustunni við Hardhome. Bakgrunnur atriðsins var myndaður á og við Djúpalónssand á Snæfellsnesi. Reyndar stóð til að taka upp atriðið á Íslandi en hætt var við það vegna veðurs og birtuskilyrða að vetri til.

Sjá einnig: Game of Thrones: Bakgrunnur Hardhome er frá Íslandi

Íslandstengingin er þar að auki rík í sjöttu seríu Game of Thrones en hljómsveitinni Of Monsters and Men bregður fyrir ásamt því að Hafþór Júlíus Björnsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson fara með hlutverk í þáttunum að þessu sinni.

Hér að neðan má sjá myndband þar sem sést hvernig tæknibrellum var beitt til að skapa umhverfi Hardhome. Þar má einnig sjá hvernig bakgrunninum frá Íslandi er bætt við atriðið.

Sjötta þáttaröð Game of Thrones hefst á HBO aðfaranótt mánudagsins 25. apríl. Þættirnir verða sýndir samtímis á Stöð 2. Þá er hægt að nálgast fyrri þáttaraðir á Stöð 2 maraþon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×