Lífið

Kim og Kanye í góðu yfirlæti á Friðheimum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kim og Kanye á veitingastaðnum í Friðheimum.
Kim og Kanye á veitingastaðnum í Friðheimum.
Stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West komu til Íslands í morgun með flugi Icelandair frá New York. Af flugvellinum fóru þau á 101 hótel en í eftirmiðdaginn héldu þau út á land.

Það varð uppi fótur og fit þegar þau komu út af hótelinu þar sem fjöldi manns hafði safnast saman fyrir framan það en úr miðbæ Reykjavíkur héldu hjónin á Friðheima, skammt frá Selfossi, áður en þau fóru að skoða Gullfoss og Geysi. Kimye og fylgdarlið þeirra greindu skilmerkilega frá ferðalaginu á samfélagsmiðlum og fylgdist Vísir með eins og sjá má hér að neðan.

Uppfært klukkan 19:51:
Ferðalangarnir frægu eru greinilega að fara Gullna hringinn, líkt og flestir ferðamenn gera sem koma hingað til lands. Fyrir skömmu birtu þær Kim og Kourtney myndir og myndbönd frá Gullfossi og virtist Kim yfir sig hrifin þegar hún hrópaði upp yfir sig "This is gorgeous!"

Uppfært klukkan
19:23: Kimye og föruneyti fóru frá Friðheimum að Geysi í Haukadal. Þar freista þau þess að sjá Strokk gjósa en af Snapchat að dæma virðist þeim vera nokkuð kalt enda er veðrið í dag ekki með besta móti, mjög hvasst og kalt. 



Uppfært klukkan 18:50: Kanye og Kim virðast hafa kunnað vel við sig á Friðheimum þar sem þau gæddu sér ekki bara á tómatsúpu heldur einnig á tómataís, tómatakaffi, tómataböku og tómataostaköku. Þau eru nú farin frá Friðheimum samkvæmt Snapchat en ekki liggur fyrir hvert þau fara næst.

Stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West fóru frá Reykjavík og suður á land ef marka má samfélagsmiðilinn Snapchat. Bæði Kim og Jonathan Cheban, vinur þeirra, hafa birt myndir og myndbönd á samfélagsmiðlinum af sér í Friðheimum. Jonathan er með þeim hér auk Kourtney, systur Kim.

Friðheimar eru skammt frá Selfossi en þar er bæði gróðurhús þar sem ræktaðir eru tómatar og veitingastaður. Á Snapchat Kim sést hún einmitt bragða sér á tómatsúpu á veitingastaðnum en þegar Vísir hafði samband við Friðheima vildi sá sem svaraði í símann ekkert segja um heimsókn stjarnanna.

Þau Kim og Kanye eru óum­deilan­lega einir frægustu einstaklingar og hjón heims. Greint var frá því fyrir nokkrum vikum að þau væru væntanleg til landsins en upphaflega þurfti að fresta ferð þeirra vegna veðurs.

Vísir hvetur lesendur til að senda myndir af skötuhjúunum og fylgdarliði í gegnum Facebook-síðu Vísis eða á netfangið ritstjorn@visir.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×