Innlent

Pabbi Sigmundar ósáttur: Einkavinir Jóhönnu og Steingríms kallaðir til sem sérfræðingar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gunnlaugur Sigmundsson fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins.
Gunnlaugur Sigmundsson fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins.
„Það kom ekkert fram í þessum þætti sem ekki er búið að svara milljón sinnum áður,“ segir Gunnlaugur Sigmundsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar inntur eftir viðbrögðum um Kastljósþáttinn þar sem fjallað var um félagið Wintris. Félagið er í eigu Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eins og fram hefur komið.  

„Það kom mér á óvart hvernig RÚV vinnur. Ég skil ekki af hverju þú ert að spyrja um viðbrögð við þættinum. Hví spyrðu ekki hvernig RÚV vinnur?“ segir Gunnlaugur. Hann tekur fram að sér finnist vinnubrögðin skelfileg.

„Þau eru svo hlutdræg. Þarna er enn aftur dreginn fram einhver Vilhjálmur Árnason sem var sérstakur ráðgjafi Jóhönnu Sigurðardóttur. Eða Indriði H Þorláksson skattasérfræðingur og einkavinur Steingríms J. Sigfússonar. Annars er ekkert um þetta að segja,“ segir Gunnlaugur.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki tal af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra í gær. 

-------------------------------

Viðbót klukkan 11.10

Vilhjálmur Árnason segir fullyrðingar Gunnlaugs Sigmundssonar úr lausu lofti gripnar.

„Ég hef aldrei átt samskipti við Jóhönnu Sigurðardóttur. Þannig að þetta er algjörlega úr lausu lofti gripið. Ég hef aldrei gefið henni ráð.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×