Innlent

Seg­ir við­tal­ið fræg­a hafa ver­ið hann­að til að rugl­a sig í rím­in­u

Samúel Karl Ólason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir að ekki standi til að halda ríkisstjórnarfund í dag. Þá telur hann að ímynd Íslands hafi ekki skaðast vegna umræðu síðustu daga. Sigmundur var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni nú í morgun þar sem opnað var fyrir spurningar frá hlustendum.

Bent á að bæði Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn á Akureyri, hans heimakjördæmi, hafi skorað á Sigmund að segja af sér, sagði Sigmundur að það væru nú ekki mikil ný tíðindi varðandi þann hóp. Þeir hafi áður skrifað greinar á sömu nótum gegn Sigmundi. Hann sagði hópinn vera afmarkaðan og að gæti ekki talist til stuðningsmanna sinna.

Hann sagðist ekki gera athugasemdir við að fólk hafi ólíkar skoðanir á sér. Hann væri í stjórnmálum eingöngu vegna þess að hann hafi trú á ákveðnum hlutum. Hafi sterkar skoðanir á því hvað þurfi að gera hér á landi.

Sigmundur sagði ríkisstjórnarsamstarfið ekki hanga á bláþræði vegna umræðunnar núna. Það myndi einungis hanga á bláþræði ef menn vildu ekki starfa saman.

Fyrsta spurningin til Sigmundar var um hvort að hann myndi selja hlustandanum hlut sinn í Wintris fyrir einn dollara.

Hann sagði ástæðu þessa gjörnings vera að hann hefði aldrei verið eigandi félagsins og að hann hefði verið skráður eigandi upprunalega fyrir mistök. Söluverðið hefði verið einn dollari þar sem um leiðréttingu hefði verið að ræða og að félagið hefði upprunalega verið einskis virði.

„Hannað til þess að rugla mig í ríminu“

Aðspurður um viðtalið sem birt var í Kastljósi á sunnudaginn, sagði Sigmundur að það hefði verið á allan hátt „hannað til þess að rugla mig í ríminu og láta mig halda að verið væri að ræða einhverja allt aðra hluti en verið var.“

Hann hefði þó auðvitað átt að standa sig betur.

Sigmundur hvatti fólk til að lesa samantekt þeirra hjóna á heimasíðu sinni. Þar að auki hefði hann vilja sjá það í Kastljósþætti sunnudags „að menn hefðu verið búnir að kynna sér það frekar en að koma með ýmsar fullyrðingar og gefa til kynna að engu hefði verið svarað þegar raunin var allt önnur.“

Engar áhyggjur af ímynd Íslands

Sigmundur hefur verið á forsíðum erlendra dagblaða og vefsíðna. Sigmundur hefur þó ekki áhyggjur af ímynd Íslands, að hún hafi skaðast með umfjölluninni

„Nei, ég hef það nú ekki. Ég tel aðalatriðið í þessu að koma réttum upplýsingum á framfæri. Það er gott til þess að vita að margir þessara fjölmiðla, a.m.k. þessir sem teljast virðulegri, taka fram hvers eðlis málið er,“ segir Sigmundur.

„Auðvitað slá menn helst upp mynudm af þeim sem eru í tilteknum stöðum eða eru þekktir, frægir íþróttamenn og fólk úr ýmsum störfum sem eru til þess fallin að gera þau að myndefni.“


Tengdar fréttir

Upplausn í ríkisstjórn innan beggja flokka

Ríkisstjórnarsamstarfið hangir á bláþræði. Megn óánægja ríkir innan bæði Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks en ákvörðunar Bjarna Benediktssonar er beðið. Tugþúsundir Íslendinga mótmæltu ríkisstjórninni á Austurvelli í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×