Innlent

Boðað til ríkisráðsfunda í dag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Nýtt ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar tekur við á Bessastöðum í dag.
Nýtt ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar tekur við á Bessastöðum í dag. vísir/ernir
Búið er að boða til tveggja ríkisráðsfunda á Bessastöðum í dag. Sá fyrri hefst klukkan 14 þar sem ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar lýkur störfum. Seinni fundurinn hefst svo klukkan 15 þar sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun skipa ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar.

Tilkynnt var um það í gærkvöldi að Sigurður Ingi verði nýr forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir kemur ný inn í ríkisstjórn sem utanþingsráðherra Framsóknarflokksins. Skipting ráðuneyta á milli stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, verða óbreytt en ekki liggur fyrir hvaða ráðuneyti Lilja mun taka við.

Nú fyrir hádegi, klukkan 10.30, verður þingfundur þar sem þeir Sigurður Ingi og Bjarni Benediktsson sitja fyrir svörum í óundirbúnum fyrirspurnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×