Enski boltinn

Garde farinn frá Aston Villa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Garde þarf að leita sér að nýju starfi.
Garde þarf að leita sér að nýju starfi. vísir/getty
Rémi Garde er hættur sem knattspyrnustjóri Aston Villa eftir aðeins fimm mánuði í starfi.

Garde tók við liðinu af Tim Sheerwood í byrjun nóvember en Frakkanum mistókst að snúa gengi þess við.

Villa vann aðeins þrjá leiki af 23 undir stjórn Garde og er rótfast við botn ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins 16 stig, 12 stigum frá öruggu sæti.

Eric Black mun stýra Villa í þeim sjö leikjum sem liðið á eftir í úrvalsdeildinni.

Samkvæmt veðbönkum þykir Nigel Pearson, fyrrverandi stjóri Leicester City, líklegastur til að taka við Villa-liðinu. Næstur á eftir honum kemur David Moyes sem hefur verið án starfs síðan honum var sagt upp hjá Real Sociedad í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×