Glamour

Situr fyrir í hjólastól fyrir Beyoncé

Ritstjórn skrifar
Jillian í auglýsingu fyrir Beyoncé
Jillian í auglýsingu fyrir Beyoncé Glamour/Instagram
Beyoncé sjálf valdi nýjustu fyrirsætuna fyrir fatalínuna sína, en hún er í hjólastól.

Fyrirsætan Jillian Mercado er með vöðvahrörnunarsjúkdóm og er þessvegna í hjólastól en hún lætur það ekki stöðva sig frá því að gera nákvæmlega það sem hana dreymir um.

Hún tilkynnti á Instagram síðu sinni um helgina að hún væri ein af andlitum nýrrar fatalínu söngkonunnar Beyoncé, sem byggð er á nýjasta laginu hennar Formation og var af myndunum að dæma í skýjunum með verkefnið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún situr fyrir en hún hefur áður verið í CR Fashion book fyrir Carine Roitfeld ásamt því að sitja fyrir hjá gallabuxnarisanum Diesel.

wait *pinches my arm* yup, all this is happening #whatislife #takingover #diversity

A photo posted by Jillian Mercado (@jilly_peppa) on

A photo posted by Jillian Mercado (@jilly_peppa) on






×