Sport

Norðurlandaþjóðirnar sigursælar á Evrópumóti ungmenna í keilu | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
mynd/jóhann ágúst jóhannsson
Norðurlandaþjóðirnar hafa verið sigursælar á Evrópumóti ungmenna (U-18 ára) í keilu en mótið fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll nú um páskana.

Í heildarkeppni pilta sigraði finnski keilarinn Niko Oksanen en hann er með 223,7 í meðaltal úr öllum keppnum. Hin sænska Cajsa Wegner sigraði í heildarkeppni hjá stúlkum með 232,2 en hún náði fullkomnum leik í dag eða 300 leik í einstaklingskeppninni.

Ísraelska stúlkan Shir Azulay náði einnig 300 leik og því hafa komið tveir 300 leikir í keppnninni í ár en hingað til hafa bara tveir fullkomnir leikir náðst í sögu mótanna.

 

Í öðru sæti hjá piltum var Brian Kjær frá Noregi með 219,4 í meðaltal og í þriðja sæti varð William Svensson frá Svíþjóð með 218,4 í meðaltal. Hjá stúlkunum varð Evrópumeistarinn frá Rússlandi, Maria Bulanova, í öðru sæti með 221,7 í meðaltal.

Hún setti mótsmet í dag þegar hún spilaði alla sex leikina í einstaklingskeppninni með því að ná 1.470 pinnum sem gerir 245 í meðaltal. Í þriðja sæti í heildarkeppninni varð svo Katie Tagg frá Englandi með 215,5 í meðaltal.

 

Mótið samanstendur af nokkrum keppnum og í gær var keppt í einstaklingskeppninni. Í piltaflokki sigraði Daninn Patrik Sörensen Slóvakann Rok Kostric í úrslitum með 249 pinnum gegn 184. Í þriðja sæti urðu þeir Emil Holmberg frá Svíþjóð og Quentin Deroo frá Frakklandi.

Hjá stúlkum sigraði Maria Bulanova frá Rússlandi hana Shir Azulay frá Ísrael með 226 pinnum gegn 184. Í þriðja sæti urðu svo þær Lea Degenhardt frá Þýskalandi og Cajsa Wegner frá Svíþjóð.

 

Hjá íslensku krökkunum fór það þannig að í piltaflokki endaði Jökull Byron Magnússon úr KFR í 55. sæti með 184,7 í meðaltal. Jóhann Ársæll Atlason úr ÍA endaði í 66. sæti með 178,8 í meðaltal. Ágúst Ingi Stefánsson úr ÍR endaði í 77. sæti með 160,7 og Þorsteinn Hanning Kristinsson úr ÍR lenti í 79. sæti með 158,3.

Hjá stelpunum fór það þannig að Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir frá Þór Akureyri endaði í 43. sæti með 165,2 í meðaltal. Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir úr ÍA endaði í 48. sæti með 157,3 í meðaltal. Helga Ósk Freysdóttir úr KFR endaði í 50. sæti með 152,8 í meðaltal og Elva Rós Hannesdóttir úr ÍR endaði í 51. sæti einnig með 152,8 í meðaltal.

 

Mótinu lýkur í dag með Masterskeppni en þá keppa 24 efstu piltar og stúlkur úr heildarkeppninni með útsláttarformi þannig að vinna þarf tvo leiki til að halda áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×