Innlent

Birti upplýsingar um fjármál 2009 en nefndi ekki hlut sinn í Wintris

Bjarki Ármannsson skrifar
„Birtir upplýsingar um fjármál sín: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að sömu skilyrði gildi um frambjóðendur flokksins í efstu sætum og þingmenn hans um að gera opinber fjárhagsleg tengsl.“

Svo segir í grein Tímans, sem gefinn var út sérstaklega af Framsóknarflokknum fyrir Alþingiskosningarnar árið 2009 og fylgdi með Fréttablaðinu. Á forsíðu blaðsins var frétt um fjárframlög til flokksins, sem og fjárhagsleg tengsl þingmanna hans. Í hliðardálki eru taldar upp upplýsingar um hagsmunatengsl Sigmundar en þar er þess hvergi getið að hann sé skráður fyrir félaginu Wintris á Bresku Jómfrúareyjum.

Það var þó tilfellið, samkvæmt þeim upplýsingum sem Sigmundur hefur gefið upp um félagið frá því að eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, greindi frá tilvist félagsins í Facebook-færslu á dögunum í kjölfar fyrirspurna frá fjölmiðlum.

Í færslu á bloggsíðu sinni á páskadag segir Sigmundur að frá árinu 2007 og þar til skráð eignarhald var lagfært hjá umsýslufélagi Wintris „síðla árs 2009“ hafi þau hjónin bæði verið skráð fyrir félaginu. Það hafi verið fyrirkomulag sem Landsbankinn lagði til og þau ekki „hugsað sérstaklega út í.“

Þau hafi þó leiðrétt skráninguna þegar þeim var bent á þetta af nýju umsýslufyrirtæki.

Upplýsingar um fjárhag Sigmundar á forsíðu Tímans, þar sem meðal annars er tekið fram að hann eigi helmingshlut í Menningu ehf., félagi um verkefni á sviði skipulagshagfræði sem hvorki hefur tekjur né gjöld, náðu þannig ekki yfir hlut Sigmundar í félagi sem skráð var á aflandseyjum og lýsti 523 milljóna kröfum í slitabú föllnu bankanna.

Í greininni á forsíðu Tímans segir að Framsóknarflokkurinn beiti sér fyrir „opnum og lýðræðislegum vinnubrögðum“ með því að greina frá heildarframlögum lögaðila til flokksins. Jómfrúarmálið svokallaða hefur aftur á móti vakið mikla reiði meðal stjórnarandstöðu og almennings þar sem enginn vissi um þessi hagsmunatengsl Sigmundar og konu, hvorki flokksmenn hans né samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn.

Sigmundur sagði í viðtali við Fréttablaðið rétt fyrir páska að hann hefði ekki talið „siðferðislega rétt“ að greina frá tilvist félagsins Wintris fyrr en þau hjónin gerðu.

Wintris heldur utan um fjölskylduarf Önnu Sigurlaugar. Hún er dóttir Páls Samúelssonar, fyrrverandi eiganda Toyota-umboðsins á Íslandi, sem seldi reksturinn árið 2005.​


Tengdar fréttir

Sigmundur Davíð segir að kona sín sé ekki hrægammur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, birti rétt í þessu færslu á vefsíðu sinni þar sem hann gerir að umtalsefni fréttaflutning af fjármálum Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu hans, en mikið hefur verið fjallað um aflandsfélag hennar á Bresku Jómfrúareyjunum síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×