Innlent

Skólaakstur fellur niður í Snæfellsbæ

Vísir/Stefán
Skólaakstur fellur niður á milli starfstöðva Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík og á Hellissandi nú í morgunsárið vegna veðurs. Starfsstöðvarnar verða þó opnar og verður ákvörðun um akstur endurskoðuð klukkan tíu að sögn skólastjóra.

Það er síðan á valdi forráðamanna að meta hvort rétt sé að senda nemendur í skólann enda tilkynni þeir í skólann þá ákvörðun sína líkt og önnur forföll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×