Fótbolti

PSG franskur meistari eftir 9-0 sigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic gerði fjögur í dag.
Zlatan Ibrahimovic gerði fjögur í dag. vísir/getty
Paris Saint Germain er franskur meistari fjórða árið í röð eftir ótrúlegan, 9-0, sigur á Troyes á útivelli í dag.

Troyes situr á botni deildarinnar og því var ávallt um erfiðan leik að ræða fyrir heimamenn. Eftir að Monaco gerði jafntefli á föstudaginn var það alltaf ljóst að PSG gat tryggt sér titilinn með sigri í dag.

Zlatan Ibrahimovic skoraði fjögur mörk fyrir PSG í leiknum, Edison Cavani tvö en hann misnotaði vítaspyrnu í leiknum.

PSG því orðnir franskir meistarar og það 13. mars sem verður að teljast ótrúlegur árangur. Liðið er á toppi deildarinnar með 77 stig, 25 stigum á undan Monaco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×