Matur

Fylltur lambahryggur með ofnbökuðum kartöflum og soðsósu

Stefán Árni Pálsson skrifar

Í síðasta þætti af Matargleðinni eldaði Eva nokkra rétti sem tilvalið er að bera fram um páskana og var sjálf páskasteikin í aðalhlutverki, fylltur lambahryggur með ofnbökuðum kartöflum í andafitu og ómótstæðileg soðsósa.

Páskalambið

Fylltur lambahryggur með tómat-og furuhnetupestói

Fyrir 4-6

1 lambahryggur ca. 2,5 kg, úrbeinaður

Fylling:

1 krukka sólkysstir tómatar

3 msk ólífutapende

70 g ristaðar furuhnetur

½ laukur

2 hvítlauksrif

1 msk fersk steinselja

Salt og nýmalaður pipar

1 msk jómfrúarolía

Börkur af hálfri sítrónu

2 tsk smátt saxað rósmarín

½ L vatn

Grænmeti:

2 laukar

4 hvítlaukar, heilir

4-6 gulrætur

Aðferð:

Látið kjötborðið úrbeina lambahrygginn.

Setjið öll hráefnin sem eiga að fara i fyllinguna í matvinnsluvél og maukið vel.

Setjið fyllingunni á milli hryggjarvöðvanna og leggið lundirnar þar ofan á.

Mótið rúllu og vefjið seglgarni utan um rúlluna og kryddið hryggginn með salti, pipar, sítrónuberki. Saxið einnig niður ferskt rósmarín og sáldrið yfir.

Skerið grænmetið í grófa bita og leggið í eldfast mót, setjið lambahrygginn yfir og hellið hálfum líter af soðnu vatni í fatið og inn í ofn við 180°c í 45-50 mínútur. Þegar 15 mínútur eru eftir af eldunartímanum er ágætt að hækka hitann í 200-210°C.

Leyfið kjötinu að hvíla í 10 mínútur áður en þið skerið það og berið fram, hellið soðinu frá og geymið fyrir sósugerð.

Ofnbakaðar kartöflur í andafitu

10-15 kartöflur að eigin vali

2-3 msk andafita

4 - 5 hvítlauksrif

3-4 rósmaríngreinar

Aðferð:

Afhýðið kartöflurnar og sjóðið í vel söltu vatni í 10 mínútur. Eftir þann tíma takið þær upp úr pottinum og leggið í eldfast mót.

Skerið niður hvítlauksrif og saxið ferskt rósmarín. Setjið 2 msk af andafitu í formið og veltið kartöflunum upp úr fitunni.

Kryddið til með salti og pipar. Bakið í ofni við 180°C 30 - 35 mínútur eða þar til kartöflurnar eru gullinbrúnar, það er gott ráð að snúa þeim við endrum og eins.

Soðsósa

300-400 ml soð

½ nautakraftsteningur

Salt og pipar

500 ml rjómi

2 tsk hveiti

1 msk olía

Aðferð:

Sigtið soðið í pott og blandið nautakrafstening og rjóma saman við.

Kryddið til með salti og pipar. Leyfið sósunni að ná suðu og hrærið vel í á meðan.

Blandið saman í skál hveiti og olíu og þykkið sósuna með hveitblöndunni.

Berið strax fram með kjötinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×