Innlent

Davíð Þór íhugar forsetaframboð: Vill berjast gegn uppgangi útlendingahaturs

Birgir Olgeirsson skrifar
Davíð Þór Jónsson.
Davíð Þór Jónsson. Vísir/Pjetur
Davíð Þór Jónsson, héraðsprestur á Eskifirði, hefur undanfarnar vikur íhugað alvarlega forsetaframboð. Hann leitast nú eftir að fá svör við því hvort kjósendur vilja frambjóðanda sem mun taka einarða afstöðu gegn uppgangi útlendingahaturs og hvort kjósendur treysti honum til að vera talsmaður þeirrar hugsjónar?

Hann segir fjölskyldu hans hafa verið með önnur plön sem hún var mjög sátt við en Davíð segir að komið hafi að þeim tímapunkti að hann gat ekki lengur leitt áskoranir hjá sér.

Uggur í mörgum

Davíð Þór segist í gegnum tíðina hafa varað við uppgangi útlendingahaturs og íslamafóbíu. „Við búum í samfélagi þar sem grunngildum samfélagsins hefur verið sagt stríð á hendur af ákveðnum hópi fólks. Við sjáum mjög hættulega þróun eiga sér stað á meginlandi Evrópu og meira segja vestanhafs líka þar sem hún birtist í persónu Donalds Trump. Það er uggur í mörgum og fólk sér fram á það í þessum kosningum standi þjóðinni til boða að taka mjög einarða afstöðu gegn þessari þróun og ákveðinn hópur sér í mér, og hvernig ég hef talað að undanförnu, trúverðugan valkost,“ segir Davíð Þór.

Davíð Þór trúir því að Íslendingar vilji stjórnast af mannúð og kærleika, ekki tortryggni og vænisýki. Fréttablaðið/Valli
Gætum sent skýr skilaboð

Hann segir þá sem höllustum fæti standa sitji undir linnulausum árásum og í þessum kosningum hafi Íslendingar tækifæri til að senda skýr skilaboð. „Við höfum tækifæri til að segja við þau: Verið óhrædd, þið eru óhult. Þeir sem tala svona eru hávær minnihluta hópur. Ísland er gott land,“ segir Davíð.

Mannréttindi ekki komin til að vera

Hann trúir því að Íslendingar vilji stjórnast af mannúð og kærleika, ekki tortryggni og vænisýki. „Reynslan sýnir okkur líka hvert þetta leiðir. Mannréttindi eru ekki komin til að vera. Þetta getur þróast í öfuga átt og við höfum séð það gerast. Og jafnvel þó við séum ekki múslimar eða samkynhneigðir, þá er bara spurning hvenær verður búið að vega nógu mikið að nógu mörgum minnihlutahópum til að röðin verði komin að okkur,“ segir Davíð Þór.

Embættið tímaskekkja ef kosningar snúast um orðuveitingar

Hann segir að ef forsetakosningar muni snúast um orðuveitingar, þá sé embættið tímaskekkja. „Vald forseta er tvennskonar. Það er annars vegar málskotsrétturinn, og hafi núverandi forseti heiður fyrir að hafa virkjað hann, en það þarf að vera á hreinu að það sé ekki háð duttlungum forseta hvernig honum er beitt, og næsti forseti verður að leggja fram mjög skýra kríteríu með hvaða hætti hann mun beita málskotsréttinum,“ segir Davíð Þór.

Það sem hann telur hins vegar vera mikilvægara hlutverk forsetans er það áhrifavald sem hann hefur í krafti embættisins og persónu.

„Þá er spurning í þágu hvaða hugsjóna og gilda ætlar hann að beita því valdi,“ segir Davíð Þór sem vill að forsetinn taki sér mjög skýra afstöðu réttu megin við víglínuna og þá gegn öfga þjóðernishyggju.

Forsetinn tali ekki í hálfkveðnum vísum

„Forsetinn þarf að tala umbúðalaust hátt og skýrt en ekki í hálfkveðnum vísum. Fasistar og frjálslynt fólk getur ekki sameinast um neitt sem skiptir máli. Forseti sem er svo upptekinn af því að vera sameiningartákn að hann þorir ekki að fá fasistana upp á móti sér, það er forseti sem ekki skiptir neinu máli. Ég vil að forsetinn skipti máli. Ég vil að það sé á hreinu fyrir hvað hann stendur. Ég vil að hann standi fyrir þau gildi sem er verið að ráðast á núna og ég trú því að meirihluti þjóðarinnar vilji byggja samfélagið á. Ég vil að hann standi fyrir hugsjónir mannúðar, mannréttinda og menningar,“ segir Davíð Þór.

Öflin sem ógna berjast gegn menningu

Hann bendir á að þau öfl sem ógna samfélagi okkar tali hátt um íslenska menningu en á hinn bóginn ráðast þau á þá sem reyna að halda uppi menningu Íslendinga. Forsetinn þurfi að vera í fylkingarbrjósti þeirra sem vilja halda uppi menningu okkar.

„Að hann sé ekki einhvers staðar á hliðarlínunni og tali í hálfkveðnum vísum og gæti þess alltaf að haga orðum sínum þannig að allir geti túlkað þau sér í hag,“ segir Davíð Þór.

Forsetaframboð stórfyrirtæki

Hann segist vera búinn að ákveða að um leið og hann fær þokkalega tilfinningu fyrir því hvort hugmyndir hans um forsetaembættið njóti nógu mikils fylgis og að fólk treysti honum til að vera í forsvari fyrir þær, þá muni hann tilkynna um ákvörðun sína, en framboðsfresturinn rennur út 20. maí.

„Þannig að það er svo sem nógur tími, en það mun taka tíma að hrinda því í framkvæmd. Forsetaframboð er stórfyrirtæki það er ekkert sem einn héraðsprestur gerir í eldhúsinu sínu á Eskifirði. Ég hef ekki margar vikur til þess en ég mun taka hana eins fljótt og mér sýnist ég vera búinn að fá svör við þessum tveimur spurningum: Er þetta eitthvað sem fólk er reiðubúið að láta þessar kosningar snúast um og er ég maðurinn sem fólk treystir til að vera talsmaður þessara hugsjóna,“ segir Davíð Þór.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×