Allt um stóra lopapeysumálið í fréttum Stöðvar 2 Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. mars 2016 17:40
Lopapeysa sem Ragnheiður Elín Árnadóttir færði borgarstjóra Chicago hefur valdið usla eftir að upp komst að hún var framleidd í Kína. Ragnheiður Elín sem er ráðherra ferðamála var í Chicago í tilefni þess að Icelandair hefur hafið skipuagt áætlunarflug til borgarinnar og var þetta jómfrúrferð flugfélagsins. Icelandair færði Rahm Emanuel, borgarstjóra Chicago, að gjöf prjónaða lopapeysu frá 66° Norður og var það ráðherrann sem afhenti gjöfina. Í fréttum Stöðvar 2 verður fjallað um gagnrýni Handprjónasambandsins en fulltrúar þess segjast vera miður sín vegna málsins. „Við hjá Handprjónasambandi Íslands erum miður okkar yfir þessari sjón. Svona flík myndi aldrei vera boðin til sölu í okkar verslunum. Handprjónasambandið leggur metnað í að hafa til sölu vandaðar lopapeysur og peysurnar okkar eru allar prjónaðar á Íslandi sem ekki er reyndin með mikið af þeim peysum sem til sölu eru hér,“ segir í yfirlýsingu sambandsins. Í fréttum Stöðvar 2 verður líka rætt við fulltrúa 66° Norður en nokkurs taugatitrings gætir innandýra hjá bæði Icelandair og 66° Norður vegna málsins. Í fréttum Stöðvar 2 verður fjallað um ákæru á hendur Geirmundi Kristinssyni fyrrverandi sparissjóðsstjóra Sparisjóðsins í Keflavík sem hefur verið ákærður fyrir umboðssvik. Þá fjöllum við um mál flóttamanns sem fékk nýlega dvalarleyfi en var vísað úr félagslegu húsnæði Útlendingastofnunar eftir að hann fékk íslenska kennitölu og er því kominn á götuna. Við fjöllum einnig um ævintýralega kortaveltu ferðamanna og leynd sem hvílir yfir gögnum um stofnun nýju bankanna og viðræður við kröfuhafa eftir bankahrunið.Kvöldfréttir Stöðvar 2 eru í opinni dagskrá kl. 18:30.
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Fleiri fréttir Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Sjá meira