Körfubolti

Níunda þrenna tímabilsins hjá Westbrook | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook, leikstjórnandi Oklahoma City Thunder, var í miklum ham í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Sacramento Kings á útivelli, 131-116.

Westbrook hlóð í níundu þrennu sína á tímabilinu með því að skora 20 stig, taka þrettán fráköst og gefa fimmtán stoðsendingar. Hann hjálpaði liðinu aftur á sigurbraut, en það er sem fyrr í þriðja sæti vesturdeildarinnar. Myndband af Westbrook ná þrennunni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Kevun Durant skoraði 27 stig og tók tíu fráköst fyrir OKC, en DeMarcus Cousins, miðherji Sacramento, var að vanda lang bestur í liði heimamanna með 35 stig og tólf fráköst.  Sacramento er búið að tapa þremur leikjum í röð og á fyrir höndum fjóra útileiki í röð. Liðið er í tíunda sæti vesturdeildarinnar.

Eftir tvo tapleiki í röð komst Cleveland Cavaliers aftur á sigurbraut í nótt þegar liðið vann sterkan útisigur á Indiana Pacers, 100-96.

LeBron James var hvíldur í síðasta tapleik Cavs en sneri aftur með látum í nótt og skoraði 33 stig auk þess sem hann tók fimm fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal tveimur boltum.

Kyrie Irving bætti við 22 stigum fyrir Cleveland en hjá Indiana var Monta Ellis stigahæstur með 28 stig. Paul George skoraði 23 stig, tók átta fráköst og gaf sex stoðsendingar.

Cleveland er sem fyrr á toppnum í austurdeildinni með 42 sigra og 17 tapleiki, en Indiana er í áttunda sætinu með 31 sigur og 29 tapleiki.

Úrslit næturinnar:

Cleveland Cavaliers - Indiana Pacers 100-96

Washington Wizards - Philadelphia 76ers 116-108

Boston Celtics - Utah Jazz 100-95

Milwaukbee Bucks - Houston Rockets 128-121

Denver Nuggets - Memphis Grizzlies 96-103

Sacramento Kings - OKC Thunder 116-131

LA Clippers - Brooklyn Nets 105-95

Staðan í deildinni.

John Wall skorar 37 stig fyrir Washington: Giannis Antetokounmpo hleður í þrennu fyrir Bucks:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×