Fótbolti

KSÍ fær tugi milljóna fyrir að spila í nýju treyjunum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslensku landsliðin í fótbolta verða áfram í búningum frá ítalska íþróttaframleiðandanum Errea, en kynntur var nýr fjögurra samningur á milli KSÍ og Errea í dag.

Það var gert á sama fundi og nýr búningur íslensku landsliðanna var kynntur til leiks, en þetta er treyjan sem strákarnir okkar klæðast á EM í Frakklandi í sumar.

Kvennalandsliðið og unglingalandsliðin munu einnig leika í sömu treyjum frá og með næsta hausti, en öll landslið munu nota nýju treyjuna næstu tvö árin.

Í fyrsta sinn fær KSÍ greitt frá búningastyrktaraðila, en þetta staðfesti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, við Vísi á fundinum í dag. Margir aðilar höfðu áhuga á að klæða strákana upp á EM og var knattspyrnusambandið því í góðri samningsstöðu.

Samningurinn hleypur á nokkrum tugum milljóna næstu árin, en heildarverðmæti samningsins er um 100 milljónir króna, að sögn Geirs.

Strákarnir okkar verða í svokölluðum slim-fit útgáfum af nýju treyjunni á EM, en hinn almenni stuðningsmaður getur keypt sér „venjulega“ útgáfu af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×