Körfubolti

Sjötti tapleikurinn í röð hjá Hlyni og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson í leik með landsliðinu í Laugardalshöllinni.
Hlynur Bæringsson í leik með landsliðinu í Laugardalshöllinni. Vísir/Vilhelm
Það dugði ekki Sundsvall Dragons í kvöld að íslenski landsliðsmaðurinn Hlynur Bæringsson skilaði flottri tvennu því liðið tapaði með ellefu stigum á móti Uppsala Basket á heimavelli sínum.

Uppsala Basket vann leikinn 86-75 eftir að hafa unnið fjórða leikhlutann 19-8 þar sem ekkert gekk upp hjá heimamönnum í Sundsvall Dragons.

Hlynur Bæringsson var með 16 stig, 15 fráköst og 2 varin skot í kvöld en hann hitti úr 7 af 17 skotum sínum.

Sundsvall Dragons hefur nú tapað sex leikjum í röð og er nú komin niður í sjötta sæti deildarinnar. Uppsala Basket er nú aðeins tveimur stigum á eftir Drekunum.

Sundsvall Dragons hefur ekki unnið leik síðan 5. febrúar eða í að verða einn mánuð. Þetta var fyrsta tvenna Hlyns í taphrinunni en hann skoraði 22 stig í leiknum á undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×