Fótbolti

Geir fundar með Lars um miðjan mánuðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að hann muni funda með Lars Lagerbäck um framhaldið um miðjan þennan mánuð.

Samningur landsliðsþjálfarans við KSÍ rennur út eftir EM í sumar en Lagerbäck hafði áður gefið það út að hann hefði í hyggju að stíga þá til hliðar.

Heimir Hallgrímsson, sem þjálfar íslenska landsliðið samhliða Lagerbäck, er með samning við KSÍ fram yfir HM 2018 og var áætlað að hann myndi einn taka við liðinu þegar undankeppnin hefst í haust.

Í fyrstu var áætlað að Geir og Lagerbäck myndu ákveða framhaldið í febrúar. „Við ræddum stuttlega saman og ákváðum að við myndum hittast um miðjan mars. Hann veit að það er vilji okkar að halda honum og hefur hann sjálfur sagt að hann sé opinn fyrir því,“ sagði formaðurinn í samtali við Vísi í gær.

Sjá einnig: Lagerbäck gefur KSÍ svar í febrúar

„Hann hefur hins vegar ekki sagt já eða nei. En hann vill ræða málin og á meðan svo er þá er alltaf von.“

Ísland leikur tvo vináttulandsleiki um páskana, gegn Danmörku og Portúgal. „Ég geri ráð fyrir því að vita meira um stöðu þessara mála fyrir þá leiki,“ sagði Geir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×